Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 79

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 79
IÐUNN Þjófurinn. 177 þótti jafnvel ekki loku fyrir það skotið, að hann kæmi með nokkru fleiri net í bátnum sínum, en hann fór með. Gísli var vanur að segja, að allir ættu jafnt það, sem í sjónum væri. Annars var bátur Gísla stolinn, gott fjögurra manna far. Hann hafði séð hann við bryggjuna í kaupstaðnum eitt sinn, er hann var þar staddur, litist forkunnarvel á farið, en vanhagaði um bát. Hann náði í skyndi í pjönk- ur sínar, bar þær í bátinn þegar rökkva tók, og Iagði af stað heim, einn, 6 klukkustunda ferð. Eigandi bátsins sá hann aldrei framar Sigríður, kona Gísla, tignaði hann og tilbað. Og aldrei brosti hún blíðar til manns síns en þegar hann kom heim með eitthvað, sem hann kallaði »happafund«. En það þóttust menn hafa fyrir satt, að aldrei hnuplaði hún sjálf. — Þjófnaðarferðir eru ekki altaf teknar út með sældinni, fremur en aðrir aðdrættir. A því fékk Gísli að kenna eitt sinn. Það var á góunni síðasta árið, sem Gísli var í kof- anum. Vetur hafði verið harður og snjóasamur mjög. Gísli var orðinn heyþrota fyrir þær fáu skepnur, sem hann átti. Þær höfðu lifað um tíma á þangi og beina- rusli. En Gísli var skepnuvinur og þótti sárt að kindur hans liðu. A næsta bæ bjó gildur bóndi, skepnumargur en hey- sterkur. Hann hafði neitað Gísla um hey nokkrum sinn- um, en lofað honum tuggu, ef alt um þryti. En Gísla leiddist að bíða. Eina nóttina fór Gísli af stað með poka undir hend- inni og stefndi til nágrannabæjarins. Hann fór hægt og rólega, var alvarlegur og hugsandi, eins og væri hann

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.