Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 88

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 88
186 Ritsjá. IÐUNN Svo kemur önnur deild verksins, með lesköflum (170 bls.) úr fornnorðrænu máli. Þar eru vestnorðrænir kaflar úr allmörgum rit- verkum. Svo koma fáeinar glepsur úr austnorðrænum ritum. Höf. segir að flesta leskaflana verði að taka úr íslenzkum ritum, því að þar sé um auðgastan garð að gresja, en samt sé vlðar um forn- norðrænt mál og bókmentir að tala en á Islandi og Englendingar þurfi að muna það, að norðrænu áhrifin á enskuna séu austnorð- ræn (og norsk) en eigi íslenzk. Þetta er víst rétf, en þó ber að líta rækilega á það, að á þeirri tíð sem áhrifin stafa frá (= vík- ingaöldinni), er næsta torvelt að benda á nokkurn verulegan mun á austurnorðrænu og vesturnorðrænu, eflir rúnaristum o. fl. að dæma. Við málfræðina hefi ég fátt að athuga. Þriðja deildin er stutt málfræði ásamt all-löngu orðasafni. Ein- stöku gáleysisvillur finnast, en þó svo fáar og smáar, að ég hirði eigi að nefna þær. Höf. hagar rithætti bæði í málfræðinni og í íslenzku lesköflunum eftir þeirri samræmingu, sem nú tíðkast mest áfornritum og kveðst miða við tímabil sígildu bókmentanna (1150—1350), en ritháttur sé þó aðallega tengdur við 1250. Samkvæmt almennustu tizku greinir höf. eigi á frá g né e frá q. En þar á móti greinir hann rækilega o frá q og œ frá æ. Sömuleiðis hefir hann ð f. d í þátíð sagna (= talði) og sk f. z eöa st í miðmynd (= kallask). En þarna er mótsögn, því að milli 1210 og 1240 féllu á og ý og líka e og q að sönnu saman, en á algert sama tíma rugluðust hin atriðin saman, svo að þetta var alt umbreytt 1250. Þar er því seilzt aftur á bak í sumu, en ekki í sumu. Gullaldarskeið íslenzka málsins og frumlegrar bókagerðar var einmitt frá 1140—1240, og við það eða miðju þess (1190) ætti fornrita samræmingin að halda sér, ef nokkur viturleg samkvæmni væri í henni hjá útgefendum. Þar á móti eru langflest eftirrit frá tímanum 1250 1370 með ýmiskonar samsteypum og viðaukum sagnanna, en fált reglulegra frumrita. Frá eldri tíð eru nú helzt til ýmis ágæt handritabrot af frumbókunum. Þess vegna er það fráleit villa að miða forníslenzka samræmisstafsetning við eflirritatímabilið, þegar sérstakt íslenzkt miðaldarmál og bókstöfun var að koma og komið í stað hins fornnorðræna málfars, sem íslenzka frumritatímabilið sýnir svo furðu vel. Það er annars næsta óviðfeldið, að málfræðingar skuli vera að leggja kapp á að greina sundur q og o o. s. frv., en líta ekki við sundurgreining á e og q þar sem þó samruninn í báðum tilfellum gerðist alveg á sama tíma. Sama má segja um sundur-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.