Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 95

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 95
IÐUNN Rilsjá. 193 vegi unnin. Oftast er það einhver snjöll óg lýsandi líhing, sem lyftir stöhunni og ljær henni vængi. Frá því um síðustu aldamót hafa mikil straumhvörf orðið á lífsháttum og menningu þjóðarinnar. Fornir siðir og menning hefir sokhið í sæ tímans, gleymst og tapast og forn þjóðnýti til grunna gengið. Þó er alþýðukveðskapurinn svo lífseigur, að hann helzt enn við og hefir jafnvel lifnað Yf>r honum á síðustu árum. Það var því ekki óþarfaverk, er þeir Þorsteinn M. Jónsson bókaútgefandi á Akureyri og Margeir Jónsson kennari tóku sér fyrir hendur með útgáfu alþýðuvísnasafns. Um tvær aðferðir gæti verið að ræða við söfnun slíka, sem sé að safna vísum nokkurn veginn upp og niður eða taka að eins úrval vísnanna. Síðari aðferðin hefir hér verið valin. Nú á síðastl. ári komu „Stuðlamál" II. í þessu hefti eru vísur eftir tuttugu höf. Ekki er það neinum vafa bundið, að meiri hluti vísnanna er Iaglega gerður og sumt mætavel. Hitt verður ávalt álitamál, hvað beri að taka og hverju beri að hafna. En að mínum dómi hefðu sumir höfundar ekki átt að eiga sæti á þessu ljóðaþingi, og margar vísur eftir aðra eiga þar ekki heima. Styrkist sú skoðun mín líka af því, að safnandi hefir gelið þess, að hér eigi sérstaklega að vanda til. Snjöllust á þessu Ijóðaþingi tel ég þau: Baldvin Hall- dórsson, Valdimar Benónýsson, Ólínu Jónasdóttur og Hjálmar Þor- steinsson. Margt er og gott hjá Hannesi Jónassyni. Eigi að síður eru margar mætavel kveðnar vísur hjá fleirum. Hún er t. d. nógu lýsandi vísan sú arna eftir Baldvin: Hristast eikur, hníga strá; hríðin sleikir gljána. Kólgu- leika -klærnar á kinnableikum mána. Er ekki sem maður sjái tunglið gægjast fram úr skýjarofinu? Hjá Valdimar vil ég einkum benda á vísnaflokkana „Heyannir" og „í heiðagöngum": Burstir grafnar blikar á, byljum skafnar kaldra daga. Rökkurstafna rúnum frá raknar nafn og alda saga. Vísur Olínu eru margar hugljúfar og lýsa djúpri viðkvæmni: Von í barmi byltir sér bæld á harmadögum.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.