Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 96

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 96
194 IÐUNN Ritsjá. Rósin varma vil<na fer vors í armalögum. Hjálmar á Hofi hefir ofl birt snjallar vísur í „Iöunni", sem eru í kveri þessu, t. d. Bætur allar eyöast máls o. s. frv. og: Var þar öngum vegur beinn — valda þröngu börðin. — Eg hef löngum labbað einn lífs um „Gönguskörðin“. Vísan er að mörgu góð, þótt óeðlilegt sé að tala um þröng börð. Hin vísan, sem prentuð var með í „Iðunni" (Eftir víða farin fjöll o. s. frv.) hefði engu sfður mátt vera með. Annars hefi ég ekki tíma né rúm til að rýna mikið einstök skáld og sízt ein- stakar vísur. Þeir Sigfús Sigfússon og Pétur Sigurðsson hefðu helzt ekki átt að vera fulltrúar á þessu þingi, því að varla hittist vísa eftir þá, sem verulegt bragð sé að. Þótt margt sé vel um Sigfús sem fræðimann, þá virðist, ef dæmt er eftir þeim vísum, er hér birtast, að hann sé ekki skáld: Marglofuð meistarasmíði mikið þótt bókmentir prýði. Ofgar og ýkjur í Njálu athyglið virðingu stálu. Slíkt er enginn skáldskapur. Auk þess er þetta alls ekki ort undir rímnahætti, heldur undir gömlu sálmalagi með réttum þrí- liðum og því rangt að taka hana í vísnasafnið. Rímnahættir eru ávalt ortir undir réttum tvíliðum. Þá vil ég, sem dæmi þess, hvað á ekki að taka í slíka bók, tilfæra þessa vísu: Það var gott þú giftir þig, gráta kjaftamellur. Þetta fanst þeim fyrir sig fjandi vondur skellur, Það er vel fyrirgefanlegt, að þessum vísum sé fleygl fram, en engin ástæða er að vernda þær frá gleymsku. Helzt til ættrækinn hefir safnandi verið í vali vísna eftir föður sinn: Veðradúrar valda því, vonamúrar falla: Hríðarskúrum ofan í íslands-búrin fjalla. Vísan er óskiljanlegt stagl. Fleiri óhæfar vísur hefi ég hnotið um, þótt ekki hafi ég rúm til að taka þær upp hér.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.