Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 4
2
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Sjómannadagsblaðid
kemur út á Sjómannadaginn ár
hvert og er sent í pósti til
áskrifenda.
Áskrift í síma (91)-38465.
ÚTGEFANDI:
Sjómannadagsráð,
Hrafnistu DAS Laugarási,
104 Reykjavík.
RITSTJÓRAR:
Garðar Þorsteinsson ábm.
Jakob F. Ásgeirsson.
RITNEFND:
Garðar Þorsteinsson,
Ólafur K. Björnsson,
Ólafur Þór Ragnarsson.
SETNING/PRENTUN:
Prentstofa G. Benediktssonar
Hálfrar aldar afmælis Sjó-
mannadagsins er nú
minnst með veglegum
hætti — og þ.á m. með tvöföldu
Sjómanncidagsblaði.
Almennt gerir fólk sér ekki
grein fyrir, hversu umfangsmikill
hann er, rekstur þessara samtaka
sem heita fullu nafni Sjómanna-
dagurinn í Reykjavík og Hafnar-
firði.
Sjómannadagurinn hefur byggt
upp frá grunni og rekur Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna í
Reykjavík og Hafnarfirði, þar
sem eru um 600 vistmenn og
vinna alls um 400 manns, — og
hefur auk þess skipulagt orlofs-
húsahverfi sjómanna í landi sínu
austur í Grímsnesi. í fjáröflunar-
skyni starfrækir Sjómannadagur-
inn happdrætti og bíó, eins og
kunnugt er.
Þessu mikla starfi er reynt að
lýsa að nokkru hér í afmælisblað-
inu. Fimmtíu ára saga Sjómanna-
dagsins kemur út á bók um þessar
mundir, og því er hér minna dval-
ið við forsöguna en títt er í afmæl-
isblöðum og þeim mun meira sagt
frá núverandi rekstri fyrirtækja
Sjómannadagsins og kynntir for-
svarsmenn þeirra.
Þótt dvalar- og elliheimili aldr-
aðra sjómanna hafi verið megin-
verkefni Sjómannadagssamtak-
anna, hafa þau látið sig varða ýms
fleiri hagsmunamál sjómanna-
stéttarinnar og ekki síst öryggis-
málin. Á 60 ára afmæli Slysa-
varnafélags íslands er því við hæfi
að kynna starfsemi þess í blaði
Sjómannadagsins, en tengsl Sjó-
mannadagsins og Slysavarnafé-
lagsins hafa ávallt verið mikil og
nægir að minna á að frumkvöðull
Sjómannadagsins og formaður
Sjómannadagsráðs fyrstu 23 árin
var skrifstofustjóri Slysavarnafé-
lagsins í þrjá áratugi.
Vegna námsdvalar utanlands,
lætur undirritaður nú af ritstjórn
blaðsins. Ég þakka forystumönn-
um Sjómannadagsráðs ágætt
samstarf og góð kynni.
Jakob F. Ásgeirsson.
FULLTRÚARÁÐ SJÓMANNADAGSINS 1988 í Reykjavík og Hafnarfírði
Stjórn Sjómannadagsins 1988: Sjómannafélag Reykjavíkur: Skipstjórafélag íslands:
Formaður: Pétur Sigurðsson Pétur Sigurðsson Ásgeir Sigurðsson
Ritari: Garðar Þorsteinsson Gjaldkeri: Þórhallur Hálfdánarson Björn Pálsson Guðmundur Hallvarðsson Amór Gíslason
Meðstjórnendur: Jón Helgason Félag ísl. loftskeytamanna:
Guðmundur Hallvarðsson Magnús Jónsson Sigurður Tómasson
Grétar Hjartarson Skjöldur Þorgrímsson Ólafur K. Björnsson
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan: Stýrimannafélag íslands: Matsveinafélag íslands:
Guðmundur Ibsen Guðlaugur Gíslason Einar Jóhannesson
Sigurður Óskarsson Hálfdán Henrysson Magnús Guðmundsson
Vélstjórafélag íslands: Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári: Félag bryta:
Jón Guðmundsson Þórhallur Hálfdánarson Rafn Sigurðsson
Daníel Guðmundsson Sveinn Á. Sigurðsson Þór Birgir Þórðarson Lárus Grímsson Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir: Einar Thoroddsen Karl Magnússon Kári Halldórsson