Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 26
24
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Frá vígslu Hrafnistu 1954: Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson og Ólafur Thors forsætisráðherra; milli þeirra situr Matthías
Þórðarson þjóðminjavörður og standandi er Henry A. Hálfdansson.
menn þá orðnir 360. Árið 1970 var G-álman komin upp,
og nokkru síðar voru smáhýsin við Jökulgrunn reist, og
vistmenn þá orðnir alls 454, — og það liafa þeir orðið
flestir. Þörfin hafði verið svo mikil að við tróðum alls-
staðar inn fólki, til dæmis rúmi inná forstjóraskrifstof-
una.
En svo tók öldin að breytast þannig að kröfur um
aukna þjónustu við aldrað fólk jókst stórlega. Þetta var
bæði af því, að aldrað fólk varð langlífara en áður hafði
verið, en um leið þurfti það meiri hjúkrunar við. Meðal-
aldur vistmanna hefur hækkað úr 72 árum, frá fyrstu
Hrafnistuárunum upp í 84 ár.
Þá breyttist tíðarandinn í kröfum um húsrými. Það
sem áður þótti gott, þótti ekki íbúðarhæft, þegar kom
fram á áttunda áratuginn.
Einnig breyttist fyrirkomulag daggjalda.
Því var ekki um annað að ræða en breyta húsakynn-
um. Vistrýmið var minnkað, en þjónusturýmið aukið —
húkrunardeildir stækkaðar, aðstaða fyrir lækna og
hjúkrunarfólk bætt. Nú eru 364 vistmenn á öllum deild-
um Hrafnistu í Reykjavík, þar af 199 vistmenn og 129 á
sjúkradeildum og 36 búa á Jökulgrunni.
*
Þegar lóð Hrafnistu í Reykjavík þótti fullbyggð - í þann
tíma máttu menn ekki hugsa til þess að skerða útsýni og
umhverfi heimilisins, a.m.k. ekki með háshýsum, - þá
var farið að hyggja að heimilisbyggingu í Hafnarfirði.
Það var gömul hugmynd frá því fyrst var rætt um
staðsetningu Hrafnistu, að til álita kæmi að reisa dvalar-
heimili á Hvaleyrarholti. Ekki var lengur um þann stað
að ræða í Hafnarfirði, en Hafnfirðingar (og Garðbæing-
ar) áttu annan stað ákjósanlegan, þar sem sá yfir innsigl-
inguna og út á Flóann og víð útsýn var til fjalla.
Ráðgert var að byggja þar vist- og hjúkrunarheimili
fyrir 240 manns, en verðbólga og verðtryggð lán breyttu
framkvæmdaáætlun.
Fyrsta skóflustungan að Hrafnistu í Hafnarfirði tók
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar 9. júní 1974, en