Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 114
112
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
BÍLDUDALS-KATA
Þau voru fljóðin viðmótsþýð
vestur á Patró forðum tíð.
En Kata af þeim öllum bar
upp þegar slegið balli var.
í okkur kveikti' hún ástarblossa,
í okkur lét hún blóðið fossa,
þegar hún snerist hring, hring, hring,
en hún kyssti bara svarta-Tóta Súðvíking.
Við rérum á gamla Faxa fimm,
og frost var of mikið og hríðin dimm.
En þegar við komum aftur inn,
var óðara gleymdur helkuldinn.
Innilegast alltaf hló hún,
upp sínum fótum liprast sló hún,
þegar hún snerist hring, hring, hring,
útá gólfinu með skruggu-Gvendi Skálvíking.
Hann stundum lotulangur blés
á leiðinni fyrir Sléttanes.
En þegar við komum aftur inn,
Ungpíulegt sitt höfuð hneigði' hún,
heillandi nett sitt mitti sveigði’ hún,
þegar hún snerist hring, hring, hring,
útá gólfinu með flotta-Pétri Flateyring.
Hann ljótur var oft í Látraröst
með löðrandi brim og iðuköst.
En þegar við komum aftur inn,
var óðara gleymdur lífsháskinn.
Brosandi sínum öxlum yppti’ hún,
uppfyrir hné sínu pilsi lyfti' hún,
þegar hún snerist hring, hring, hring,
útá gólfinu með breiða-Steina Bolvíking.
Við eltum fiskinn um allan sjó,
og erfiðið var oft meira en nóg.
En þegar við komum aftur inn,
var aldrei neitt fengist um þrældóminn.
Heldur en ekki hnarreist var hún,
höfuð sitt jafnan stoltast bar hún,
þegar hún snerist hring, hring, hring,
útá gólfinu með Alla Kalla ísfirðing.
Teikning: Steinþór Sigurðsson.