Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 98
96
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Laugarásbíó. myndin tekin í fyrra þegar Skjól var enn í byggingu,
Sjómannadagsblaöiö/Björn Pálsson
húsum í Reykjavík, en þegar bíóin
þar tóku að fjölga sýningarsölum var
grundvellinum kippt undan rekstrin-
um. Þá voru myndirnar mun lengur í
sýningu — og það er nú eins og við
vitum ekki meira mál fyrir Hafnfirð-
inga að bregða sér til Reykjavíkur en
t.d. fólk í Breiðholti að fara niður í
miðbæ.
Jú, það varð mikil breyting á kvik-
myndahúsarekstrinum með tilkomu
myndbandsins. Áður fyrr keypti ég
sýningarrétt á bíómyndum til 5 ára
og bíóið hafði tekjur af því að end-
ursýna myndirnar út um allt land og
gat síðan jafnvel endursýnt þær einu
sinni eða tvisvar hér í Reykjavík. En
núna frumsýnir maður splunkunýja
mynd og hún er komin á myndbönd
fimm mánuðum seinna. Laugarásbíó
brást við myndbandaæðinu með því
að tryggja sér rétt til útgáfu á mynd-
böndum með íslenskum texta og
fram til 1986 varð hagnaðurinn af
þeirri starfsemi til þess að vega upp á
móti því tapi sem varð á rekstri bíós-
ins vegna síminnkandi aðsóknar.
Ég hef þá trú að bíórekstur eigi
eftir að standa af sér fjölmiðlabylt-
ingu undangenginna ára, útbreiðslu
sjónvarps, myndböndin, gervi-
hnattasendingar o.s.frv. Mynd-
bandaæðið þvingaði mörg kvik-
myndahús út um land til að hætta
starfsemi, en þau eru nú að opna aft-
ur eitt af öðru. Fólk vill fara út og
blanda geði við annað fólk, það
nennir ekki lengur að sitja eins og
dæmt fyrir framan þennan kassa
sinn. Fólk kemur nefnilega ekki síð-
ur í bíó til að sýna sig og sjá aðra en
að horfa á myndina.
Það jafnast ekkert á við að horfa á
kvikmynd á stóru tjaldi. Filman blíf-
ur. Það er ekki hægt að varpa mynd-
böndunum á stórt tjald, myndin
verður svo grófkornótt. Þá eru dol-
bytækin, þessi mikla hljóðtækni í
kvikmyndahúsum nútímans, óvið-
jafnanleg; í bíó skynjar maður þögn-
ina, heyrir laufblöðin falla af grein-
um trjánna.
Og ef fólki líður vel í bíó, þá kemur
það,“ segir Grétar í Laugarásbíó.
Þess má að lokum geta að vist-
menn Hrafnistu-heimilanna fá
ókeypis aðgang að öllum sýningum
kl. 5 og 7 í Laugarásbíó, auk þess sem
þar er stöku sinnum efnt til sérstakra
sýninga um nónbil fyrir gamla fólkið,
bæði vistmenn á Hrafnistu og á öðr-
um öldrunarheimilum í borginni.