Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Síða 119

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Síða 119
ÞORSTEINN HJARTARSON BRAUTARHOLTSSKÓLI OG INDVERSKI SYSTURSKÓLINN BEDKUVADOR BRAUTARHOLTSSKÓLI Brautarholtsskóli er í Skeiðahreppi, Árnessýslu. Skólahúsið var byggt árið 1933 og þótti á þeim tíma mikil bygging, en um árabil var skólinn einnig eitt helsta sam- komuhús sýslunnar. Árið 1986 var byggt við skólann sem bætti verulega alla að- stöðu. Brautarholtsskóli var og er enn í dag aðal félagsmiðstöð Skeiðahrepps og á sumrin er ferðaþjónusta á holtinu. Þar gegna skólinn, skólaleikvöllurinn og Skeiða- laug stóru hlutverki. í næsta nágrenni er fjallið Vörðufell sem er gömul eldstöð og jökuláin Þjórsá. Jökla- og fjallasýn er fögur frá Brautarholti. Nemendur eru 26 á aldrinum sex til tólf ára. Kennslufyrirkomulag er nokkuð sveigjanlegt, en oftast er nemendum skipt í tvær deildir. 1.-4. bekkur eru saman í yngri deild og 5.-7. bekkur í eldri deild. Starfstími skólans er níu mánuðir. Eftir nám í Brautarholtsskóla fara nemendur í 8.-10. bekk Flúðaskóla, en báðir skólarnir eru heimanakstursskólar. í desember s.l. var haldið upp á 60 ára afmæli skólans. Þá vitnaði greinarhöf- undur m.a. í vígsluræðu Klemensar Þórleifssonar sem var fyrsti skólastjóri Brautar- holtsskóla: / listasaftii Einars Jónssonar frá Galtafelli er höggmynd, sem hann kallar Dögun. Mynd pessi sýnir nátttröll, sem farið hefur um nótt til mannabyggða og rænt þaðan ungri og íturvaxinni stúlku og er á leið með hana inn í bergið. En áður en það kemst svo langt, þá rís sól í austri. En það var eðli nátttröllanna, að þola ekki birt- una, þola ekki skin sólar. Og myndin lýsir því augtmbliki þegar fyrstu sólargeisl- arnirfalla íaugu tröllsins. Það steytir hnefann móti hinni upprennandi sól og hat- ur örvæntingarinnar lýsir sér í svipnum meðan líkatni þess er að breytast í stein. En ungtnærin breiðir faðminn móti Ijósinu, ylnutn og frelsinu og óutnræðileg von og gleði Ijómar af andliti hetmar, því hún veit að fyrir geislum sólarinnar hlýtur jafnvel hintt sterkasti myrkravættur að hníga. Síðar í ræðunni líkti Klemens íslensku þjóðinni við ungu stúlkuna sem var í örmum nátttröllsins (þ.e. fáfræði). Þjóðin hafði lengi mátt þola innlenda og erlenda áþján, fáfræði og hleypidóma. En um það leyti sem Skeiðamenn stofna Brautarholtsskóla var íslensk þjóð að stíga stórt skref í átt til aukinnar þekkingar og réttlætis. Það er svo okkar að tryggja að „gömlu nátttröllin" gangi ekki aftur. Það þarf umfram allt að efla skólakerfið svo íslendingar verði um ókomna tíð í hópi menntaðra þjóða. Kennarar Brautarholtsskóla hafa reynt að halda vöku sinni og sinna ekki einungis hefðbundnum kennslustörfum heldur einnig þróunarstarfi. Það sem hefur kannski Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 3. árg. 1994 117
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.