Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Blaðsíða 107
HRÖNN PÁLMADÓTTIR
gefa niðurstöður til kynna hvernig íhlutun kennara var og viðhorf til erfiðleika
drengjanna ásamt sýn á eigið hlutverk. Hér á eftir verður gerð grein fyrir dæmum við
tvennar leikaðstæður og í tveimur hópstundum. Einnig verður fjallað um helstu nið-
urstöður úr viðtölum sem tekin voru við starfsfólk deildanna.
Dæmi úr frjálsum leik
1. Leikur með föt og skart
Leikurinn fór fram að morgni á heimilissvæði að loknu vali og stóð yfir í 30 mínútur.
Heimilissvæðið er við gluggavegg innst í aðalherbergi deildarinnar og var stór
pappakassi í einu horninu og átti að gera úr honum hús. Svæðið afmarkast frá kubba-
krók með eldhúsinnréttingu í hæð barnanna. Þar var ýmislegt leikefni sem ætlað er
til hlutverkaleiks og velja börnin í sameiningu hvaða leikefni á að leika sér með í
hvert skipti.
Börnin sem völdu að leika sér með föt og skart voru Einar sem athyglin beinist að,
Halla og Katrín, öll fjögurra ára, og Siggi, fimm ára. Einnig kom við sögu Óli, fjög-
urra ára drengur sem valið hafði að leika sér í kubbakróknum en hann hafði mikinn
áhuga á því sem gerðist á heimilissvæðinu. Tveir starfsmenn hjálpuðu börnunum í
fatnaðinn, Einar klæddi sig í pils og hálsfesti var hengd um hálsinn á honum, Halla
íklæddist gullkjól, Katrín setti upp hringa og fór í kjól. Siggi fékk aðstoð við að setja
upp eyrnalokka og íklæddist röndóttu vesti. Mikil kátína ríkti meðal barna og full-
orðinna og fannst börnunum mikið til alls gullsins koma. Að svo búnu drógu kenn-
arar sig út úr heimilissvæði og voru í hinum enda stofunnar og aðstoðuðu börn við
borðleiki. í góða stund dáðust börnin að djásninu og deildu því á milli sín.
í eftirfarandi dæmum sem eru ríkjandi fyrir boðskiptin í leiknum kemur fram
hvernig Einar vekur athygli leikfélaganna á sér og hvernig viðbrögð þeirra eru. Enn-
fremur dæmi um íhlutun kennarans.
Stuðningur leikfélaga
Einar notar mikið óyrt skilaboð, svipbrigði og hljóð til að tjá óskir sínar. Hann reynir
að losa sig við hálsfesti, lítur til starfsmanna og gefur frá sér óánægjuhljóð. Hann
hefur yfir að ráða einföldum setningum til að gefa til kynna leik og segir „okkar var"
við Höllu og Katrínu sem ekki bregðast strax við og býr hann til hátt sírenuhljóð í
framhaldi af því. Einar bregst jákvætt við leikhugmyndum annarra og þegar Óli
segir: „Einar var þinn ekki kóngur" svarar Einar að bragði „okkar var kóngur"og
beinir því að stúlkunum. Leikfélagar Einars sýna mikla leikni við að aðstoða hann í
leiknum. Siggi og Katrín reyndu bæði að hjálpa honum með hálsfestina í byrjun án
árangurs, Siggi reyndi að losa hana en Katrín kallaði til kennara sem heyrðu það ekki.
Lausn ágreinings
Þá árekstra sem upp koma leysa börnin sjálf og eiga Óli og Siggi sinn þátt í því. Einar
á í nokkrum erfiðleikum með að láta að stjórn í leik og þegar kastaðist í kekki milli
Einars og stúlknanna kemur Siggi með bandspotta og dregur hann eftir gólfinu fram
fyrir Höllu sem eltir bandið sem hundur. Drengirnir vaka yfir því hvert athygli
105