Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Blaðsíða 70
TVÆR STEFNUR - TVENNS KONAR HEFÐIR í KENNSLU UNGRA BARNA
fyrir utan. Leggist nú fram á borðið og hugsið hvernig þið viljið hafa
þetta." Sara kallar þá á eina stúlku og biður hana að koma til sín því hún
ætli að sýna þeim hvernig þau geti látið börnin á myndinni horfa út um
gluggann. Biður stúlkuna að snúa baki í bekkinn og bendir börnunum á
hvað þau sjái þegar hún snýr baki í þau, eyrun, hárið og hugsanlega nefið.
Dreifir þá blöðunum og segir börnunum að hefjast handa og að hún ætli
að hlusta á nokkur börn lesa á meðan þau vinni.
Stærðfræðikennslan er annar áberandi þáttur í starfinu í fyrsta bekk. Báðir kenn-
arar notuðu nýtt námsefni í stærðfræði, Kátt er í Kynjadal og Eining 1 og 2, sem bygg-
ist mikið á hlutbundinni vinnu og umræðum. Svipað kennslufyrirkomulag er í
báðum skólunum, innlögn fyrir allan hópinn í Hæðaskóla en fyrir minni hópa í
Bryggjuskóla og eru börnin öll á sama stað í námsefninu. Auk námsbókanna eru
notuð ýmis hjálpargögn svo sem kubbar, gervipeningar, perlur og pinnabretti.
Sara er með rúmlega 20 börn í bekk og var því oft hamagangur og fjör þegar unn-
ið var á hlutbundinn hátt í stærðfræðinni. Hér að neðan er atvikslýsing úr stærð-
fræðitíma sem fór fram í lok febrúar. Sara var að vinna með talningu, talnaskilning
og hugtök og tengdi það líkama barnanna og þeim sjálfum.
Þegar ég mæti í stofuna hennar Söru þennan morguninn sitja börnin í sæt-
unum sínum með A4 blað með fjórum reitum fyrir framan sig. Sara er
uppi við töflu og er að vinna að því að búa til súlurit um augun. Hún notar
myndvarpa og er með blaðið sem börnin eru með á myndvarpanum. Hún
biður börnin að skoða augun á sessunaut sínum og segja hvernig þau eru
á litinn. Hún skráir fjölda blárra augna í einn reitinn, brún augu í annan,
grá í þriðja reitinn og græn í þann fjórða. Börnin gera eins á blaðið sitt og
svo telja þau og sjá að það eru 12 blá augu, 3 brún, 2 grá og 5 græn. Sara
leggur síðan til að þau telji hve mörg börn eru mætt og bera saman við
augun. Þá segir Sara: „Hvaða litur hefur fæst augu"? „Hvað er fæst" segir
barn. Ertu búin að gleyma því segir Sara og útskýrir svo: „Fæstir eru sama
og fáir og það sem er lítið af. Það er fæst af gráu. En hvaða lit eru flestir
með." Á svipuðum nótum heldur umræðan áfram.
Sara var nokkuð gagnrýnin á nýtt námsefni í stærðfræðinni og finnst henni námsleg-
ar kröfur hafi aukist mjög mikið á undanförnum árum. Hún telur að í raun sé ekki
hægt að bera það saman við það sem áður var í sex ára bekkjum. Áður hafi verið unn-
ið með tölur upp í 5 og 10 en nú sé ætlast til að börn geti ráðið við tugi og hundruð.
Hún telur hluta barnanna alls ekki ráða við þetta. Hún segir að í námsefninu sé gert
ráð fyrir að unnið sé mikið með áþreifanlegt efni, en í raun sé ekki möguleiki á því í
svona stórum hópi. Alla vega fylgi því gífurlegur hávaði og læti. María og Vera sam-
starfskona hennar eru hins vegar nokkuð ánægðar með þetta nýja námsefni sem
þeim finnst höfða vel til barna á þessum aldri. Þær telja að þessar aðferðir gangi vel
hjá þeim vegna fyrirkomulagsins og lítilla hópa. Þær bera þetta saman við árið áður
þegar þær voru með 20 börn í hóp.
68