Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Blaðsíða 72

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Blaðsíða 72
TVÆR STEFNUR - TVENNS KONAR HEFÐIR í KENNSLU UNGRA BARNA Leikur er ekki stór þáttur í skólastarfinu í fyrsta bekk í Hæðaskóla. Börnin hafa þó tækifæri til að leika sér frjálst í frímínútum sem eru þrennar yfir daginn, tvisvar sinnum í 15 mínútur og einu sinni í 20 mínútur. Ekki er um frjálsan leik að ræða inn- andyra, en hins vegar veitti ég því athygli að ef börn voru inni í frímínútum vegna veikinda nutu þau þess að ieika sér. í Bryggjuskóla var svokölluð næðisstund hjá fyrsta bekk frá kl. 11:50-12:20 daglega. Þá gátu börnin valið sér verkefni af ýmsum toga svo sem spil, tölvur, kubba, legó og að teikna. Á þessum tíma létu kennararnir börnin líka lesa, en að öðru leyti skiptu þeir sér ekki af þeim. María sagði mér að þær vildu frekar sleppa einhverju öðru heldur en að stytta þennan tíma. María er ánægð með þessa tilhögun og finnst þarna vera gott tækifæri til að fylgjast með börnunum við aðrar aðstæður en í kennslustund. Hún segir: Þarna hefur maður svo kjörið tækifæri til þess að fylgjast með krökkunum, svolítið svona félagslega, því að við erum bara einu sinni í viku úti í frí- mínútum, þannig að við sjáum svo lítið hvernig þau eru í leik. Það er mjög forvitnilegt fyrir kennarann að fylgjast með því. Ahrifaþættir Aðalnámskrár og námsefni Þegar rannsóknin fór fram höfðu aðalnámskrár fyrir bæði skólastigin tiltölulega nýlega verið gefnar út og í kjölfar þess töluvert af nýju námsefni fyrir fyrsta bekk grunnskóla. Leikskólakennararnir í rannsókninni töldu að útkoma nýrrar námskrár hefði ekki breytt neinu um þeirra störf. Hins vegar töldu þeir að Uppeldisáætlunin sem út kom árið 1985 (Uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili, 1985) hafi markað tímamót því þá hefðu í fyrsta sinn verið sett orð á störf leikskólakennara og leikskóla- kennarar styrkst mjög í að líta á sig sem fagmenn. Jóna sagði: „Mér fannst þetta vera komið þarna á einn stað, hvað það er sem ætlast er til af leikskólanum." Leikskóla- kennararnir töldu sig ekki bundna af námskránni á nokkurn hátt. Andrea sagðist lítið hafa skoðað hana, en það væri ágætt að renna yfir þetta af og til, til að „sjá hvort mað- ur væri að gleyma einhverju." Grunnskólakennararnir töldu að töluverðar breytingar hefðu orðið með tilkomu nýrrar aðalnámskrár og fundu fyrir þrýstingi um að komast yfir efnið í nýju náms- bókunum. Sara talaði sérstaklega um hve miklar breytingar hefðu orðið á stuttum tíma hvað varðaði kröfur sem gerðar væru til sex ára barna og fannst henni n*msbækurnar stýra starfinu um of. Hún sagði: „Þetta er orðið allt allt annað en var. Það er ekkert sambærilegt... Mér finnst bara of miklar kröfur í rauninni á þessa litlu krakka, stærðfræðin og allt ... samkvæmt þessari nýju námskrá." Hún er ósátt við þær aðstæður sem fyrsta bekk eru búnar og þær námslegu kröfur sem gerðar eru til barnanna. Hún vildi hafa meiri tíma í leik og skapandi starf. Söru finnst einnig að alls kyns prófum og athugunum á börnum í fyrsta bekk hafi fjölgað. Þroskapróf af ýmsu tagi eru lögð fyrir börnin og svo hafi kennurum verið gert að leggja fyrir stærðfræði- könnun og læsispróf um áramót. Hún lítur gagnrýnum augum á stöðluð próf fyrir svo ung börn, telur lítið gagn vera að þeim og segir að niðurstöður þeirra gefi sér engar viðbótarupplýsingar um börnin. Hún segir: 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.