Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 108
BOÐSKIPTI í LEIKSKÓLA
Einars beinist og sýna hugvitssemi við lausn ágreinings. Þegar Einar vill ekki af-
henda Óla stein sem kallaður var „gullsteinn" grípur Óli á það ráð að segja með eftir-
væntingu í röddinni „ég ætla að missa hann aftur." Þá losnar tak Einars um steininn
og Óli tekur hann. Óli réttir Einari annan stein með þessum orðum: „Þú getur notað
hann sem gullstein." Einar er ekki ánægður á svipinn og hvíslar Óli þá einhverju að
honum. Einar ljómar upp, kinkar ákaft kolli, hoppar og brosir.
Samleikur og spenna
Siggi hendir blaði og penna ofan í stóra kassann sem var í einu horninu. Drengirnir
skotra allir augunum til kennaranna og hvorki Óli né Siggi fara ofan í. Einar vippar
sér upp á kassabrúnina, snýr sér fram í stofuna til starfsmanna og kallar hvort hann
megi, en þeir voru uppteknir við annað. Þá tók Siggi sig til og ýtti Einari ofan í kass-
ann. Hann verður hræddur fyrst en gleðin og spenningurinn yfir því að vera niðri í
stórum kassa varð yfirsterkari. Hlátur og æsingur einkennir leikinn sem á eftir fylgir.
Siggi lokar kassanum og Einar opnar hann aftur. Mestu orðaskiptin eiga sér stað milli
Einars og Sigga þegar Einar er ofan í kassanum og spenna er mest í leiknum.
Gagnkvæmni í samskiptum
Tilfinningalegt innihald boðskiptanna milli barnanna og milli barna og kennara ein-
kennist af því að þau bregðast á jákvæðan máta hvert við öðru. Drengirnir sýna fé-
lagsfærni og innlifun þegar þeir leiðbeina Einari í samskiptum sínum.
Guðrún leikskólakennari horfir á leik barnanna í skamma stund áður en hún
gengur til þeirra. Hún er hlýleg með opið áhugasamt andlit. Einar er í þann veginn
að koma upp úr kassanum þegar hún kemur til barnanna. Einar beinir orðum sínum
að henni og segir „nú get ég lagað pennann." „Já" segir hún og reynir ekki frekar að
komast að fyrirætlan hans eða hvað hann var að gera í kassanum. Hún nefnir nafn
hans og biður hann að passa sig. Katrín horfir á Guðrúnu og segir með blíðu í rómn-
um „við erum að leika okkur." Guðrún endurtekur orð hennar með spurn og já-
kvæðni í málrómi án þess að leita nánar eftir því hvað leikurinn gengur út á eða tjá
samskipti milli barnanna í leiknum. Hún segir börnunum að hún vilji ekki að þau séu
í kassanum, útskýrir hvers vegna og þau fara að tilmælum hennar. Einar dró sig í hlé
og tók ekki þátt í samtalinu við kennarann. Guðrún gengur úr skugga um hvort Einar
hafði skilið það sem fram fór áður en hún yfirgaf leiksvæðið. Einar svarar og gætir
pirrings í rödd hans.
2. Búðarleikur
Val hafði farið fram á deildinni að morgni og höfðu fjögur börn, Tumi sem sjónar-
hornið beinist að, Anna, Ásta og Beta, öll fimm ára, valið að leika sér á heimilissvæði
sem er í innsta herbergi deildarinnar. Leikurinn stóð yfir í 15 mínútur.
Fyrir framan gluggann er dýnum staflað upp og eru þær notaðar í hvíldartíma
barnanna. Á miðju gólfi er lágt borð og stóll. Ofan á borðinu er stór búðarkassi. Við
vegginn andspænis glugganum er innrétting í hæð barnanna. Tréskápur er fyrir
fatnað sem börnin gátu klætt sig í og eldhúsvaskur og eldavél í hæð barnanna. Enn-
106