Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 16
190
Uppreistin gegn siðmenningunni.
IÐUNN
holgrafin og sýkt af kynvillu og ónáttúru, með öllum
Jieim kvalalosta, er slíku fylgir.
Þetta gefur nægilega hugmynd um vinnubrögð hins.
„heilaga æðis“, sem á að frelsa Þýzkaland og endur-
leysa heiminn. Þjóðverjar eru hinir einu raunverulega
„hvítu menn“. Þýzkaland er, samkvæmt pví, er Stefan
George kveður, landið,
„par sem sitt auglit í árdaga sýndi
alblómguð jörð hinu bjartleita kyni,
er síðar sýktist og viltist."
Það á að hreinsa burt hina kristnu Miðjarðarhafs-spill-
ingu. Þjóðverjar, „hið bjartleita kyn“, sigurvegararnir,,
soðnir saman í ósundurgreinilegt hetjubákn, með einn
vilja, eina hvöt, lofsyngjandi dauðann á vígvellinum,.
grimmilega lausir við allar hliðsjónir til annara', í guð-
dómlegum rétti síns þýzka hreinleika, — fyr eða seinna
halda peir af stað til pess að sigra heiminn og frelsa.
II.
Og nú kynni lesandinn að spyrja: Hvernig urðu Jieir
svona? Hvernig mátti það ske, að rúmur helmingur
einnar hinnar voldugustu þjóðar og gáfuðustu skyldi
hrapa niður í múgsæði svo villimannlegt, heimskt og
ógnandi öllum heimi? Ekkert eitt svar og engin ein
skýring er hér fullnægjandi, því að hér erum vér komnir
að hinni gömlu hringavitleysu: Hvort varð fyrr til,.
eggið eða hænan? Og því spyrjum vér og fáum ekkert
svar: Er saga einnar þjóðar ávöxtur af skapferði henn-
ar, eða skapferði hennar af sögunni? Voru það óheppi-
legar aðstæður, eða Jretta örlögmótandi skapferði, sem.
tafði sameiningu Þjóðverja um tvær aldir og varnaði
þeim að hefja samkeppnina um heimsverzlun og ný-
lendur samtímis Frökkum og Englendingum? Sú stað-