Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 12
186
Uppreistin gegn siðmenningunni.
IÐUNN
sem enn á ný eru orðnir að villimönnum.“ — Vert er
.að veita því athygli, að þetta vitfirta kynstofnsdramb
beinist ekki einungis gegn Semítum og lituðum þjóð-
flokkum, heldur einnig gegn Rómönum og Keltum.
Fyrsta skrefið í áttina til þessara styrjalda, ham-
fara og sigurvinninga verður, eins og gefur að skilja,
uð vera endurhreinsun hins germanska kynstofns af
framandi blóði og trúarbrögöum. Verða þá Gyðingar
-og kristinn dómur fyrst fyrir barðinu á þeim. Kirkj-
urnar, sem á yfirborðinu varðveita að sönnu hinn arf-
genga kennistíl, eru nú endurskipulagðar frá þessu
rsjónarmiði sem ariskar og germanskar kirkjur. Petta
er óhjákvæmilegt, þar sem Nazistar hafa opinberlega
afneitað siðalögmáli Jesú um leið og þeir hafa skafið
upp heiðnar dygðir forfeöra sinna. Þannig var ræða.
:sem Franz von Papen hélt á dögunum í Miinster og
reyndar setti hálfgerða klýju að blaðalesenduin alls
staðar um heim, ekkert annað en gleiðgosaleg útlegg-
ing á höfuð-kennisetningu Nazista:
„Bókmentir, sem stuðla að friði, skilja ekki hinn
germanska viðbjóð á því að deyja í sóttarsæng. . . .
Fyrst og fremst eru fulltrúar þjóðernisbyltingarinnar
gunnreifir hermenn, líkamlega og siðferðilega." — Að
svo miklu leyti, sem þeir eru ekki orðnir „gunnreifir
hermenn“ á siðsamlegan(l) hátt, þarf ekki að efa, að
séð verður um, að þeir verði það, — með kynstofns-
hreinsun, með ný-heiðni, með því að fjötra hugsunar-
þróttinn í blindri hlýðni, unz búið er að gera alla
þjóðina gráa fyrir járnum og draga gasgrímur á hvert
snjáldur og germanskur himinfögnuður yfir því að
deyja á vígvellinum er orðinn æðsta hugsjón hvers
Þjóðverja.
Enn kynnu lesendur mínir að væna mig um ýkjur.