Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 42
216
Uni ættjarðarást.
IÐUNN
lyndur. Heyrði hann einhvern nefna fósturjörðina, snéri
hann sér við og svaraði: Já?
Loks var þarna auðugur, en atvinnulaus verkfræð-
ingur til þess að setja vélarbáknið' í gang. Og þar með
var hinn þjóðlegi hjálpræðisher stofnaður, með Friðþjóf
Nansen, búanda Moe og Yfirher-drómedara Bratlie sem
æðsta ráð.
Svo var pað stefnuskráin. Jú, látum okkur nú sjá,
— stefnuskráin var að fá þjóðina til að rísa upp úr
værðarmollunni, að sameina- hana og brýna til dáða —
og alt eftir þessu. — En hvern fjárann átti svo að gera?
Félagið átti vitanlega að vera ópólitískt. Allir áttu
að sameinast um að endurreisa fósturjörðina og ganga
milli bols og höfuðs á föðurlandssvikurunum.
ópólitískt en í snarsnúinni vígstöðu gegn óvinin-
um heima fyrir, gegn eyðingar- og sundrungar-öflunum,.
gegn andanum frá Moskva, gegn öllum kommúnistisk-
um og hálf-kommúnistiskum stefnum.
Þannig var Félagi föðurlandsvina ætlað að vera:
Ópólitiskur flokkur, er tæki upp harðsnúna baráttu gegn
öllum stefnum, sem ekki væru íhaldssinnaðar.
f>ess konar ópólitíska flokka höfðum við reyndar
áður. Við höfðum t. d. bæði ihaldsflokkinn og Bænda-
flokkinn.
Það er engan veginn auðvelt að skýra þetta nánar.
Við skulum taka það upp aftur: Sameina þjóðina og
brýna hana. — Og þegar hún svo er nægilega brýnd,
hvað þá? — Jú, þá stöndum við eins og glópar.
Nei, með þessu Iagi getur það ekki gengið. Við verð-
um að hafa raunhæfa stefnuskrá, — stefnuskrá, sem er
líkleg til að vinna fylgi. „Endurreisa landið fjárhags-
lega“ — það er nú svo. Það vilja allir flokkar. Nei, við
verðum að beina átökunum að einhverju sérstöku.