Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 97
JÐL'NN
Kirkjan og árásarlið hennar.
271
jörðin, svo miklu víðtækara er guðsríki Jesú Krists
en kommúnistaríki Karls Marx eða Lenins.
Hvernig slík trú getur orðið þrándur i götu jreirra
viðfangsefna, sem lífið varða mest, get ég á engan
hátt skilið. Og ég mótmæli j)ví, að jressi trúarbrögð
séu utanveltu við lífið sjálft. Að öllu leyti snerta jrau
lífið. Þau gefa oss fagra og viðfeldna skýringu á j)ví.
Þau gefa oss viturlegan og dýrlegan tilgang með j)Ví.
Þess vegna geta j)au innblásið mönnum fögnuð og
starfsþrek. Og að minni skoðun er kristindómurinn
miklu meiri og fegri jafnaðarmenska en nokkur cin-
sýnn og ofstækisfullur kommúnismi, sem formælir guði
og hans dýrð, um leið og hann seilist eftir molun-
um af borðum hans.
Blindir eru þeir, sem þannig rnæla, á æðstu dá-
semdir lífsins, og allar þeirra hugsanir lenda á veg-
leysu, eins og sálmaskáldið segir um þá óguðlegu.
Þó að kommúnistar séu óguölegir, er ekki með því
sagt, að þeir séu vondir meiw, eins og þeir vilja láta
í veðri vaka um okkur prestana. En áreiðanlega væru
þeir meiri menn en þeir cru, ef j)eir reyndu að
temja hugsun sína til meiri skilnings og samúðar við
sérhverja hugsun bróðernisins, hvar sem hún keniur í
Ijós. Þeir ættu að gleðjast, hvar sem j)eir sjá bjarma
af hugsjón bræðralagsins, svo framarlega sem jafn-
aðarhugsjónin er þeim alt í öllu.
Benjamín Kristjánsnon.