Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 72
246
Baugabrot.
IÐUNÍV
Verur þessarar skapgerðar, börn síns tíma, hafa rekiö
sig á það, að þau mega ekki vilja, nema innan vissra,
þröngra vébanda. En innan þessara vébanda hafa þau
fundið, að fátt er jafn-saklaus og ódýr skemtun, sem
'veitir þó gagnkvæman viðskiftalegan hagnað, eins og
koss milli hafna, þegar höfundar hans sjást í fyrsta og
— síðasta sinni.
Akureyri, júní 1932.
Sveinn Bergsveinsson.
Baugabrot.
Enginn vafi er á því, að hin svo nefnda þjóðernisstefna
(patriotism) er alvarlegasta hættan, sem ógnar menningu
vorra tíma. Og alt það, sein elur á slíkuin hugsunarhætti,
ber oss að forðast til jafns við hungursneyð og skaðvænar
pestir. (Bertrand Russell.)
Meðaumkun er eiginlega ekkert annað en sú óbifanlega
sannfæring vor, að oss líði betur en öðrum, og sú örugga
von, að oss muni alt af líða jafn-vel.
(Albert Engström.)
Trúarbrögð líða undir lok, þegar sannindi þeirra liafa
sannast. Vísindin eru eins konar skrá yfir dauð trúarbrögð.
(Oscar Wilde.)
Hvernig er það? — Er maðurinn axarskaft guðs? Eða
er guð axarskaft mannanna?
(Friedrich Nietzsche.)