Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 90
264
Kirkjan og árösarlið hennar.
TÐL’NN
vitandi falsið gullna mynt tilverunnar fyrir höfuðstól
eiginhagsmunanna: efnahag, álit eða völd.
Ég fyrir mitt Ieyti hefi enga tilhneigingu til að ímynda
mér, að vinir mínir og góðkunningjar séu yfirleitt ili-
menni, falsarar og svikarar. Miklu fremur vil ég ímynda.
mér, að þeir séu góðir menn og gegnir, vilji vel með
sinni pólitísku baráttu, hugsjónir Jreirra séu ekki hræsni
eða uppgerð, heldur beri þær að eins á sér fingraför
takmarkaðs skilnings. Enginn efi er á f>ví, að þeir
munu allir í einum kór berja sér á brjóst og sverja, að
í baráttu sinni fyrir bættum kjörum vesalinganna hafi
]>eim aldrei gengið neitt annað til en hinar óeigingjörn-
ustu og göfugustu hvatir. Ekki ætla ég mér p>á dul að
rannsaka hjörtun og nýrun, og vel getur verið, að
svona sé þetta i raun og veru í mörgum tilfellum.
Þeir berjast eftir sínum siðgæðishugmyndum og hug-
sjónum og ættu manna bezt að kunna að gera grein
fyrir þeim.
En svo er þá einnig um kirkjuna. Hví skyldum vér
prestar þá liggja undir þeirra dómi eins og guðsdómi?
Höfum við blóð lítilmagnanna á okkar samvizku eða
látum við okkur umhugað um að hindra úrlausn góðra
málefna? Við neitum slíkri ákæru sem órökstuddri og
ósvífinni persónulegri móðgun. Slík ákæra er þess
eðlis, að það er ekki hægt að rökstyðja hana. Hún er
ofstækisfull trúarsetning.
Kirkja Islands er fyrst og fremst frjáls, víðsýn og
samúðarrík kirkja og ekki bundin neinum böndum. Ein-
mitt af því, að hún er ríkiskirkja og ekki fjötruð neinum
kreddum úreltra játninga eða þröngsýnna sérkreddu-
flokka, hefir hún aðstöðu til þess að vera víðsýn. Kirkj-
an er ekki' í þjónustu neins auðvalds. Hún er, vill vera.
og á aö vera að eins í þjónustu kristinna hugsjóna: