Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 60
IÐUNN
Koss milli hafna.
(Essay-story.)
Fátt er svo eðlilegt, blátt ái'ram og laust við afleið-
ingar eins og koss milli hafna, pegar báðir höfundar
hans sjást í fyrsta sinni.
Petta þykir ef til vill undarlegt, og mönnum finst
þessu kastað fram eins og kiljönskum slagorðum, en
svo er ekki. En samt er nauðsynlegt að ýmis skilyrði
séu fyrir hendi, hvað snertir hinn kvenlega aðilja:
1) Til þess að hún láti yfirleitt kyssa sig, við fyrstu
sýn, milli þéttsettra hafna islandsstranda, á skipi, sem
gengur ef til vill 12 eða 13 mílur á klst.
2) Til þess að kossinn sé afleiðingalaus, í hversdags-
merkingu þess orðs.
Að vísu verða aldrei slíkar rannsóknir og niðurstöður
nákvæm (exact) vísindi. En meðan mannlegt eðli er
sjálfu sér samkvæmt, er gert ráð fyrir, að á sama
þroskastigi, við sömu aðstæður, komi fram vissar
hneigðir og athafnir undir vissum skilyrðum hjá öll-
um heilbrigðum manneskjum.
Fyrsta skilyrðið er, að hún hafi alist upp í sveit 13,
14 eða 15 fyrstu ár æfi sinnar. Fyrstu árin eftir að
böncl einangrunar losna, teygja menn ofsalegast úr sér
og breiða faðm sinn mót öllu, sem frelsi lífsins hefir
aö bjóða, eins og það getur glæsilegast birzt í ár-
degisvist alþýðustúlkunnar. Fólkið vill vita til hvers
það hefir fæðst og leitar með sóttheitri þrá eftir svölun
>og fylling.