Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Blaðsíða 91
IÐUNN
Kirkjan og árásarlið hennar.
265
bræðralags, réttlætis, kærleika og sannleika. Hún er
þetta, að svo miklu leyti, sem vér, jijónar hennar, erum
færir um að skilja jiessi hugtök, útskýra jiau og innræta
jiau ungum og öldnum. Og jiessar hugsjónir byggir
kirkjan á jieirri trú, að heiminum stjórni vitsmunaöfl,
réttiát og kærleiksrík i insta eðli sínu. Hún byggir
jiær einnig á Jieirri trú, að lífið sé eilíft og eigi óendan-
lega möguleika fyrir höndum. Þess vegna telur hún
ekki ávalt sjálfsagt að líta á hlutina einungis frá sjónar-
miði líðandi stundar. Hún skoðar jiá einnig frá sjónar-
hól eilífðarinnar.
Andstaðan við kommúnismann er upphaflega alls
ekki sprottin frá kirkjunni, heldur frá kommúnismanum
sjálfum. Hví eru kommúnistar ekki svo hreinskilnir að
skilja Jiað og viðurkenna, að það voru Jieir, sem sögðu
kirkjunni stríð á hendur — en kirkjan ekki þeim?
Og hví þykir þeim það þá líklegt, að kirkjan líti hýru
auga til þeirrar pólitísku trúar, sem níðir hana á hvert
reipi og telur hana glæpastofnun, sem þarf að uppræta?
Hér kemur enn blindni trúarofstækisins í Ijós. En
þetta er auðsætt af því, að kirkjan var upphaflega
kommúnistisk stofnun og livers konar jafnaðarhugsjónir
liggja henni til grundvallar. Guðsríkiskenning Jesú
Krists er hin stórkostlegasta og jafnframt gagnröksam-
legasta jafnaðarhugsjón, sem boðuð hefir verið. Alt frá
dögum Jóhannesar skírara og þar til Jesús kom fram,
leituðust ofbeldismenn við að taka guðsríki með valdi.
Hver messíasinn af öðrum kom fram og reyndi til
að gera byltingu, hrinda hinu útlenda valdi og stofna
þann veg ríki friðarins. Ekki verður betur séð, en aö
Jóhannes sjálfur skírði hermennina, sem komu til hans„
einmitt til þess að taka þátt í slíkri baráttu. En guðs-
ríkisstofnun allra Jiessara manna: Júdasar frá Galileu.