Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 17
IÐUNN Uppreistin gegn siðmenningunni. 191' reynd stendur óhögguð, að allajafna síðan ríkið var sett á iaggirnar árið 1871, hefir Þjóðverjum þótt semi þeim væri bolað út úr risakappleik hinna sigrandi velda, með rangindum og þeim til stórtjóns, — að þeir hafL verið órétti beittir og sviftir réttmætri arfleifð. Em alt af bjó með þeim sá grunur, að þessir hagir, sem ollu þeim svo mikillar skapraunar, ættu rætur sínar í einhverri veilu í þjóðarskapinu, einhverjum skorti á hæfileika til sameiningar, sambeitingar allrar orku, sam- átaka gagnvart umheiminum. Nazistahreyfingin gerir hvort tveggja í senn: Hún ýkir þessa innri veilu og afleiðingar hennar og bann- færir hana um leið. Nazistastjórnin hygst að lóða alla Þjóðverja saman í ósundurgreinilegt bákn. Af þeim. ástæðum er hún á þönum um alt til að þurka út hvern vott sérríkjastefnunnar úr gerð hins þýzka ríkis, og hefir jafnvel gert Bayern svo lágt undir höfði að. gera það að prússneskri hjálendu. En hverfum aftur að efanum, sem Þjóðverjar hafa. geymt innra með sér, að þeirri djúplægu grunsemd, að það sé eitthváð í skapferði sjálfra þeirra, sem gerði þá. að eftirbátum Englendinga og Frakka. Um langan aldur hafa þeir verið þjóð óviss um sjálfa sig, valtir í sjálfs- mati sínu. I djúpum vitundar þeirra fólst örlögþrungið- vantraust á sjálfum sér. En á sama hátt og einstak- lingurinn rís öndverður gegn því að kannast við undir- málstilfinningu sína, hvort heldur er fyrir sjálfum sér eða öðrum, en leitast í þess stað við að bæta sér hana upp og yfirbæta sér hana, þannig fer og þjóðum.. Einstaklingurinn andæfir, þá er svo er ástatt, hverjum efa um eigið gildi með því að staðhæfa, að hann sé- stórum betri en aðrir. Þannig reyndu Þjóðverjar eftir 1870 að vega á móti þessari áleitnu. grunsemd um ó-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.