Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 52

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 52
226 Fólkið á Felli. IÐUNN Gunnar: Skárri er það nú bölvuð frekjan, að ætlast til þess, að maður fari að þræla heilan sunnudag, þegar kaupið er nú heldur ekki hærra en þetta. Verst, ef Stina hefir nú orðið vond og fæst nú alls ekki til að fara. Nei, ætli það séu nú nema látalæti. Jón: Mér fyndist það nú satt að segja ekki nema sanngjarnt, þó þau væru í heyi, þegar svona stendur á og orðið er jretta áliðið sumars. F>að væri þó alt ann- að en gaman, ef hann færi nú að rigna aftur. „Það væri nú gott, ef jietta væri nú alt komið heim,“ segir hann hálf-hátt og andvarpandi. — — — Fólkið heldur heim, jregandi og alvörugefið. Jón er alt af öðru hvoru að horfa upp í loftið. „Ég heid hann sé að^ láta af áttinni", segir hann, en rekur um leið tána í jrúfuhnotta og steypist á hramm- ana.------Gunnar bælir niður hlátur. „Ég held j)ú ættir að gá niður fyrir fætur Jrér, maður“, segir húsfreyja. Það er Iiað eina svar, sem Jón fær, svo hann gerir ekki fleiri tilraunir að halda uppi umræðum. Sunnudagsmorgunn — bjarlur og fagur. Sólin skín og glampar á snögghærða gæðingana, sem verið er að reka heim á bæjunum í sveitinni. Fólkið ætlar auðsjá- anlega að fjölmenna á kirkjustaðinn. En sætin, sem gengiö var frá í gærkveldi á engjunum, standa afar-róleg á víö og dreif, eins og ]>au segi, að fólkið skuli njóta. sunnudagsins og guðs blessunar; jiau bíði bara róteg og fylli sveitina í dag meö ilmi jiurra heysins. Jón bóndi á Felli hefir sjálfur sótt hestana, jiví unga fólkið vill fá að sofa út svona á sunnudagsmorgna. Það er afráðið, að jiað fer alt á tombóluna í dag, fólkið á Felli. Ingibjörg réði jiað úr í nótt, og Jón varð jiá að fallast á að fara líka. Annars er hann heldur litið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.