Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 68

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 68
242 Koss milli liafna. IÐUNN hennar kauptúni á þessu stigi málsins. Var ekki leyfiiegt að álykta sama tilgang af sömu handtökum? Og hún hefirmörgum öðrurn skarpari skilning og meiri trú á hið féiagsfræðilega hugtak: mátt samtakanna, þvi að hún rís nú upp frá bakinu á legubekknum og gefur honum bil. Slíkt er ekki lengi látið ónotað. Annar arrnur hans Jæsir sig um mitti kvenmannsins, með hinni hendinni tekur hann urn hendur hennar og leggur vanga sinn að hári hennar. Hann fitlar nokkra stund við hring á fingri hennar, sem einhvern tíma hefir verið gyltur og með þremur steinum, og enn þá eru eftir tveir. Hann cr að segja henni frá einhverju á meðan, sem ekki krefst alt of mikils skilnings né snertir of mjög ])að viðkvæma mál, sem hugur þeirra snýst um, m. ö. o. eitthvað, sem hvorki er vit í né tilfinning. Fimm mínútna samræða af slíku tagi er nægilegur formáli. Hann veltir vanga sínum eítir vanga hennar, þar tii munnarnir mætast. Hún hrærir sig ekki. Hún skilur, að hér er hvorki tími til uppgerðar né undanbragða. Purrar varirnar Jrrýstast livor inn í aðra. En þetta er enn þá æsingalaust og jafnvel hálf-dræmt. Hað er eins og þau séu að hugsa um, hvort þetta gaman borgi sig eða ekki. Pegar þau hafa andað ]iannig hvort upp í annað svo sem eina mínútu, hætta þau. Nú hefst samtal, sem er svo langt frá því, sem var að gerast, og svo langt frá því, sem þau sjálf hugsa mest um, að hver listhneigöur áhorfandi myndi hafa skemt sér prýðilega, ef einhver leikritahöfundur befði dottið ofan á að búa svo raunsannan þátt út á leiksviö. Það er t. d. eitthvað á þessa leið: „Það er mikið af svartfugllA hér á firðinum."

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.