Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Blaðsíða 68
66
Árbók Háskóla íslands
1982, eins og áður segir. Tillögur nefndar-
innar voru síðan sendar deildarforseta 14.
maí 1982 og samþykktar á deildarfundum
21. maí og 11. júní. Er þá komið nær lokum
þess skeiðs sem hér er fjallað um. Því er of
snemmt að meta árangurinn af starfi
nefndarinnar í einstökum atriðum, en full-
yrða má að hún hefur vakið umræður um
stefnu deildarinnar, og eigi starf nefndar-
innar ekki eftir að leiða til merkra nýjunga
verður það sök annarra en hennar.
Gunnar Karlsson
Rannsóknastofnun í bókmenntafræði
M eginviðfangsefni Rannsóknastofnunar
í bókmenntafræði eru:
a) Stofnunin annast vísindarannsóknir í ís-
lenskri og almennri bókmenntafræði,
bókmenntasögu, bókmenntalegri fagur-
fræði og bókmenntarýni.
b) Stofnunin annast útgáfu bókmennta-
texta og fræðirita um íslenskar og al-
mennar bókmenntir.
c) Skv. reglugerð heyrir öll kennsla í ís-
lenskum og almennum bókmenntum og
bókmenntafræði undir stofnunina.
Stjórn stofnunarinnar er skipuð þremur
mönnum, forstöðumanni og einum öðrum,
kjörnum af heimspekideild til þriggja ára í
senn úr hópi þeirra háskólakennara er fullt
starf hafa við stofnunina, svo og einum
stúdent er þar stundar nám, og stendur
Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum,
fyrir kjöri hans.
Stjórn stofnunarinnar 1979—80 skipuðu:
Próf. Sveinn Skorri Höskuldsson, forstöðu-
maður, ásamt Vésteini Ólasyni dósent og
Kristínu Þorsteinsdóttur, B.A. Árin
1980—82 skipuðu stjórn: Próf. Bjarni
Guðnason, forstöðumaður, ásamt Nirði P.
Njarðvík dósent, og voru fulltrúar stúdenta
Knútur Hafsteinsson, B.A., fyrra árið, en
Vilhjálmur Sigurjónsson, stud. mag., síðara
árið.
Húsnœði. Stofnunin er til húsa á þriðju
hæð í Árnagarði, og þar er aðstaða fyrir
stúdenta á cand. mag.-stigi til að vinna að
lokaprófsritgerðum sínum.
Fjármál. Stofnuninni er úthlutað fé á
fjárlögum rikisins. Auk þess hefur hún haft
ofurlitlar tekjur af bókaútgáfu og Vísinda-
sjóður hefur styrkt hana til útgáfu bók-
menntafræðilegrar uppsláttarbókar.
Rannsóknir og útgáfustarfsemi. Stofnunin
gefur úr þrjár ritraðir:
a) Islensk rit. Ritstjórn annast Njörður P.
Njarðvík og Vésteinn Ólason. Óskar Ó.
Halldórsson dósent hvarf úr ritstjóm-
inni, er hann lét af störfum 1980.
b) Studia Islandica. Ritstjóm annast Sveinn
Skorri Höskuldsson. Þessar tvær ritraðir
eru gefnar út í samvinnu við Bókaútgáfu
Menningarsjóðs.
c) Fræðirit. Stjóm stofnunarinnar hefur
annast ritstjóm og ritröðin er gefin út í
samvinnu við Hið íslenska bókmennta-
félag.
Þá er þess að geta, að undanfarin ár hefur
verið unnið að undirbúningi bókmennta-
fræðilegrar uppsláttarbókar og hefur dr.
phil. Jakob Benediktsson allt frá 1978 verið
ritstjóri hennar. Hefur hann verið í hálfu
starfi við það verk, en auk þess hafa
stúdentar lagt honum lið yfir sumarmánuð-
ina, Halldór Guðmundsson og Ömólfur
Thorsson. Er bókin nú í lok ársins 1982
nánast fullbúin til prentunar.
Eftirtalin verk hafa komið út á vegum
stofnunarinnar 1979—82.