Hugur - 01.01.2002, Side 63

Hugur - 01.01.2002, Side 63
Sálin í Hrafnkötlu“ Hugur „In place of hermeneutics we need an erotics of art“.13 En hér er margs að gæta. í fyrsta lagi verða menn að hafa lágmarksskilning á skáldverki til að geta notið þess. Séu túlkun og skilningur samslungin þá komast menn ekki hjá því að túlka verkin þó menn hafi erótíska afstöðu til þeirra. í öðru lagi gefur augaleið að þótt æskilegt kunni að vera að gefa sk.. í vísindalega túlkanir þá er ekki þar með sagt að þess lags túlkanir séu ekki mögulegar. Við höfum séð að hughyggjan er ekki ýkja góður kostur. Hughrifs- hyggja Paters er ekki ýkja sannfærandi og sú kenning að túlkanir séu tilfinningalegar og þar með huglægar byggir á þeirri röngu forsendu að tilfinningar geti ekki haft skynsemisþátt. Róttæk afstæðishyggja Róttæk afstæðishyggja er miklu máttugri andstæðingur en hughyggjan. Eins og ég gaf í skyn telja stuðningsmenn hennar að túlkunarsamfélög séu lokaðir heimar. Lesendur lifa og hrærast í mismunandi heimum og túlkanir á textum eru ósammælanlegar (e. incommensurable). Sérhvert túlkunarsamfélag hefur sína sérstöku hugmynd um ágæti túlkana, hug- myndir sem eru öldungis framandi öðrum menningarheimum.14 Allt er þetta gott og blessað en samt áskil ég mér rétt til andmæla. Ég vil benda á að ekki er hægt að vita hvort lesendur sem byggja mismun- andi heima túlki texta með gagnólíkum hætti nema að gera ráð fyrir því að þeir túlki sömu textana. Sé svo þá eiga heimarnir það alltént sameig- inlegt að tilteknir textar hafa sama „ídentítet“ í þeim öllum. Auk þessa getum við ekki sagt að þeir túlki textana með mismunandi hætti nema að geta borið þá saman og þá er ekki djúp staðfest milli túlkunarheima. Við getum eflt gagnrýni vora rökum þeirra Donalds Davidsons og Reed Way Dasenbrocks. Sá fyrrnefndi vegur að kenningunni um ósammælan- leik (e. incommensurability) tungumála og að breyttu breytanda má yf- irfæra þá gagnrýni á hugmyndina um ósammælanleik kenninga og þar með túlkana. Það fylgir svo sögunni að tvær kenningar eru ósammælan- legar ef grundvallar vandkvæði eru á að þýða þær á hvors annars mál. Ef hægt er að þýða þær þannig að þýðingarnar virðast spegilmyndir hins þýdda eru þær sammælanlegar. Því þá er samanburður okkar á ágæti kenninganna engum vandkvæðum bundinn. Við gætum án nokkurra 13 Susan Sontag: ,Against Interpretation“, Against Interpretation (New York: Dell, 1964) bls. 14. 14 Af þessu sjáum við að þótt félagslegt eðli túlkana sýni veilur hughyggjunnar þá gildir ekki slíkt hið sama um afstæðishyggju. 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.