Hugur - 01.01.2002, Qupperneq 66

Hugur - 01.01.2002, Qupperneq 66
Hugur Stefán Snævarr þeirra við önnur orð.18 Þannig er merking hál sem áll, við getum aldrei höndlað hana fremur en gæfuna. Við sjáum aðeins spor hennar, ekki hana sjálfa, rétt eins og spámenn biblíunnar sem sáu verksummerki Guðs, ekki hann sjálfan. Merkingunni er sífellt slegið á frest, merking er mismunur og frestun í senn. Því hefur nýyrði Derridas „différance“ ver- ið þýtt sem ,„misfrestun“ á íslensku og fer vel á því.19 Annar áhrifamikill efahyggjumaður um skilning er Willard Van Orm- an Quine (hann verður vart kallaður „efahyggjumaður um þýðingu“ en það er önnur saga).20 Að hans mati má líkja skilningi okkar á yrðingum við skilning mannfræðinga á tungumáli sem þeir hafa aldrei heyrt áður og líkist engu máli sem þeir þekkja. Segjum nú að einstaklingur sem mælir á þessa tungu bendi á kanínu sem kemur hoppandi eftir skógar- stíg og segir „gavagai!“. Er gefið að mannfræðingnum beri að túlka „ga- vagai“ sem „kanínu“? Öldungis ekki, segir Quine. Mannfræðingurinn getur strangt tekið ekki útilokað að „gavagai“ merki í huga viðmælenda síns „kanínuhlutir sem ekki hafa verið aðskildir“ eða „kanínuleiki á hreyfingu“ o.s.frv. Hin rétta túlkun er ekki til, túlkanir eru vansannaðar af staðreyndum og því getur fleiri en ein túlkun verið í samræmi við sömu staðreyndirnar. í raun og sannleik er öll túlkun okkar á yrðingum undir þessa sökina seld, við getum aldrei verið viss um hvort við skiljum yrðingar annarra með sama hætti og þeir skilja þær sjálfir.21 Ekki þarf mikla skarpskyggni til að sjá að hafi Davidson lög að mæla þá hefur Quine á röngu að standa án þess að ég hyggist ræða þau mál frekar. Náskyld pælingum manna á borð við Quine er sú skoðun efasinna að allir textar séu margræðir. Alltént sýnist mér þetta vera höfuðatriðið í kenningu Derridas um að allur lestur sé mis-lestur. Hægt er að skilja sama texta á marga vegu, þess vegna er sérhver skilningur mis-skilning- 18 Ferdinand de Saussure: „On the Nature of Language" (þýtt úrval úr Cours de lingustique générale) Michael Lane (ritstj): Structuralism: A Reader (London: Cape 1969) bls. 43-57. 19 Eg fer kannski nokkuð frjálslega með kenningar franska póstmeistarans enda ekki heiglum hent að skilja spekimál hans. Biblíudæmið er frá mér sjálfum kom- ið en er mjög í anda meistarans. Jacques Derrida: „Différance“ (úrv.), Peggy Kamuf (ritstj.): A Derrida Reader. Between the Blinds (þýðing úr frönsku) (New York: Harvester, 1991) bls. 59-80. 20 Einhverjum þykir kannski skrítið að ég spyrði jafnólíkum hugsuðum og Quine og Derrida saman. Svarið er einfaldlega að þeir eiga meira sameiginlegt en virð- ist í fljótu bragði. Auk þess stunda menn eins og Rorty slíka furðuspyrðingar grimmt, „hvað höfðingjarnir hafast að hinir ætla sér leyfist það“. 21 Eins og Quine-fróðir menn sjá hef ég einfaldað rök hans mjög. Willard Van Orm- an Quine: Words and Objects (Cambridge, Mass: M.I.T. Press, 1960) einkum bls. 26-40. 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.