Hugur - 01.01.2002, Side 117
Vísindastríðin, sannleikurinn og Rorty
Hugur
ir það sjónarmið að hún sé ekki mælikvarði á beitingu vitsmuna í rann-
sókn. Aðrar aðferðir eða nálganir geta verið nákvæmlega jafn skynsam-
legar án þess að eiga nokkuð sameiginlegt með vísindalegri aðferð.13
4
Þessar þijár bækur: Rorty and his Critics, The One Culture? og Fas-
hionable Nonsense eru ágætar heimildir um eitt dúpstæðasta ágrein-
ingsefni samtímans. Þessi rit sýna vel að það er ekki hægt að afgreiða
deilur um hugtök sem hvern annan hégóma. Vísindastríðin og ólík sjón-
arhorn á mörg svonefnd grundvallarhugtök hugsunarinnar sýna okkur
að samtíminn einkennist öðru fremur af leit að skilgreiningu á sjálfum
sér. Þar er vísindahyggja í raun fulltrúi hinna íhaldsömu viðhorfa, vilj-
ans til að varðveita það viðhorf að til sé starfsemi og aðferð sem er æðri,
eða að minnsta kosti óháð, þjóðfélagslegum veruleika: Séu vísindin ekki
hafin yfir félagslegan veruleika sé allt glatað. Þannig eru vísindin helg-
uð og hafin á stall frekar en að reynt sé að sjá þau í sínu rétta samhengi
sem þekkingariðnað.
I hinu viðhorfinu felst hinsvegar vilji til að varpa hefðarhugsun fyrir
róða, sú trú að vísindahefðin sé hluti af þeim klafa sem hugsun og við-
horf eru bundin á. Hefðarhugsun er ekki varpað fyrir róða í þeim skiln-
ingi að ein tegund hugsunar sé gefin upp á bátinn en einhver önnur haf-
in á stall í hennar stað. Hún felst fremur í nýrri afstöðu gagnvart hefð,
vísindum og þekkingu, afstöðu sem Rorty kallar „íróníska“ sem gæti
kannski útlagst „glettin“ eða „alvörulaus.“ Það sem Rorty boðar er ekk-
ert annað en að við eigum að vara okkur á því að taka hlutina of alvar-
lega og átta okkur á hinum Qölmörgu rökum fyrir því að öll þekking sé
fallvölt.13
Það sem raunvísindamenn kvarta hinsvegar réttilega yfir er vísindaó-
læsi hugvísindanna, skilningsleysi á markmiðum og aðferðum raunvís-
indanna. Það er eitthvað fáránlegt við að heimspekingur skuli gera flók-
inni og tæknilegri kenningu skil í verki sínu án þess að gera minnstu til-
raun til að skilja raunvísindalegt umhverfi kenningarinnar. Vísindastríð
geisa auðvitað ekki bara á milli hugvísinda og raunvísinda. Þau er að
finna miklu víðar, ekki síst á milli hugvísinda og félagsvísinda og þó að
stöðugt sé talað um þverfaglegar nálganir um þessar mundir þá er ekki
12 Richard Rorty, 1999 Philosophy and Social Hope bls. 36, sjá einnig bls. 80-82.
13 Sjá Richard Rorty, 1988 Contingency, Irony and Solidarity Cambridge: Cam-
bridge University Press.
115