Búnaðarrit - 01.01.1917, Page 24
18
BÚNAÐARRIT
í Landshagsskýrslum Bókmentafélagsins er fyrst getið
um útfluttan æðardún árið 1784, þá voru flutt út 1930 pd.
Árið 1806 2184 pd., 1816 6480 pd., 1840 5329 pd. og
1849 3991 pd.
í Varningsbók Jóns Sigurðssonar er nánar skýrt frá
útflutningi á æðardún á 18. öldinni en í Landshags-
skýrslunum; er sú skýrsla þannig:
1734 hreineaður dúnn 172 pd., óhreinsaður dúnn 5936 pd.
1743 — 142 — n — 4750 —
1753 — — 172 — n — 3174 —
1764 — 331 — n — 1992 —
1772 — 281 — n — 1097 —
1779 -„- — 2401 — n — 76 —
í Almanaki Þjóðvinafélagsins 1904 eru skýrslur um
útfluttar iand- og sjó-vörur árin 1764—1783. Þar er út-
fluttur æðardúnn talinn:
1764—’73 hreinsaður æðardúnn 2128V» pd- óhreinsaður 13373 pd.
1774—'83 —1695 — —4846 —
Af óhreinsuðum æðardún vel þurrum mun að jafnaði
fara 4 pd. í eitt pd. hreinsað, og verður dúntekjan þá
að meðaltali þessi ár samkvæmt þessum skýrslum :
1764—’73 547 pd. ogl774—’83 1816 pd.,samtals 2363 pd.,
og meðaltal þessi 20 ár 1181 pd.
í Varningsbókinni segir ennfremur: „Eftir því, sem
sagt er frá, þá hefir enginn dúnn verið hreinsaður á ís-
landi fyrst framan af, og í elztu kaupskránum er ekki
getið um dún sem verzlunarvöru; 1624 og 1630 er eng-
inn dúnn heldur talinn með útfluttri vöru. Bogi Benedikts-
son á Staðarfelli hefir sagt svo frá, að Jón Pétursson í
Brokey hafi fyrstur manna á Vesturlandi farið að hreinsa
æðardún og komið verði á hreinsaðan dún fyrst upp í
sléttan dal (1 krónu), og síðan upp í spesíudal (spesíu);
en áður var óhreinsaður æðardúnn seldur eftir Búalögum
eða pundið á alin. Á 18. öld er íarið að telja dún með'