Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 50
44
BÚNAÐARRIT
5. Hve mörg egg á æðarfngliun?
Sé ekkert eða litið tekið af eggjum frá æðarfuglinum,.
á hann vanalega 5—6 egg, stundum þó ekki nema
3—4, einkum gamlar æðarkollur, en stundum 7—9, en
færri paiturinn er það. Séu fleiri egg i hreiðri, má alloftast
telja víst, að fleiri en ein æður hafi orpið þeim, eins og
áður er á vikið. Sé fuglinn rændur eggjunum jafnóðum
og hann verpur, má neyða hann til að verpa miklu fleiri
eggjum, en eðlilegt er honum það ekki. Meðan eg tók
egg lítið eitt, varð eg þess aldrei var, að fuglinn bætti
við fram yfir hina venjulegu eggjatölu. Meðan eggjatakan
var í blóma sínum, voru eggin tekin fram eftir öllu vori-
segir Óiafur stiftamtmaður, að i mestu varphéruðum
landsins um hans daga, Breiðafirði og Þingeyjarsýslu,
hafi egg verið tekin til Jónsmessu, og með því móti
hafi tekist að láta sama fuglinn verpa 24—30 eggjum1).
Einu sinni kveðst hann hafa séð æðarkollu í varpinu á
Innra-Hólmi með 19 ungum, og liggur honum við afr
trúa því, að hún hafi átt öll þau egg, en trúlegra þó, að
tvær æðarkollur hafi verið um þennan fjölda, en önnur
dáið frá ungunum, en hin þá tekið við fóstri þeirra.
En hvorugu þessu þarf að vera til að dreifa.
Því er svo varið með æðarfuglinn, að þegar hann
kemur á sjóinn með unga sína, þekkir hann þá ekki frá
öðrum æðarungum á sama reki. Um útleiðsluna er vana-
lega mikil mergð af ungamæðrum umhverfis varplöndin,
áður en þær ieggja af stað þaðan. Fara þá ungarnir í
algerðan rugling, og tekur hver kolla þá, sem hún nær í.
Eg hefi oft séð æðarkollur, sem fóru til sjávar með vana-
lega ungatölu, 4—6, vera að lítilli stundu liðinni búnar
að missa þá flestalla í ungaþvöguna, sem fyrir var. En
þær eru ekki ráðalausar fyrir það, heldur taka ungana
þá holt og bolt úr hópnum og eru innan skamms stundum
1) Þótt, eg vilji ekki beint rengja þessa frásögn Ólafs, þá þykir
mér hún nokkuö ótrúleg, að því er til eggjafjöldans kemur.