Búnaðarrit - 01.01.1917, Side 164
158
JBÚNAÐARRIT
Tillögin frá sveitunum voru ýmist úr sveitasjóðum eða frá bún-
aðarfélögum eða báðum í sameiningu. — SumBtaðar var borgað
fyrir að sýna — 25—50 aurar á hrút — og það gjald notað til
verðlauna. í einni sveit var verðlaunaféð eingöngu frjáls samskot.
Það var í Álftaveri.
Búnaðarfélag íslands veitti til verðlauna 15 kr. fyrir hverja
sveit, og úr sýslusjóðum Árnessýslu og Skaftafellssýslu voru
veittar jafnmargar krónur til hins sama fyrir hverja sveit þeirra
Býslna. En úr sýslusjóði Rangárvallasýslu var ekkert veitt.
í mörgum sveitum láta menn heldur litið af hendi rakna til
verðlauna; Gnúpverjar hafa lagt mest fram, eins og taflan
ber með sér.
Á Siðu og í Skaftártungu urðu engar sýningar. í Kirkjubæjar-
hreppi lýsti búnaðarfélagið því yfir með bréfi frá formanni þess
til Búnaðarfélags íslands, að bændur þar í sveit vildu ekki sýn-
ingu þessa. í Hörgslandshreppi gerðu sveitarmenn ekkert til þess
að sýningin kæmist þar á. í Skaftártungu átti að verða sýning,
en fórst fyrir vegna breytingar, er gerð var með sýningardaginn
og stafaði af þvi að engar sýningar urðu á Síðunni.
Eins og taflan ber með sér, voru haldnar sýningar í öllum
öðrum sveitum í þessum þremur sýslum.
Tíðarfar spilti ekki fyrir því, að menn sæktu sýningarnar, nema
dagana sem þær voru haldnar í Holtum og Ásahreppi og á
Rangárvöllunum.
Alls er tala sýnendanna 576. Tala sýndra hrúta var 1225; af
þeira hlutu 12 fyrstu, 162 önnur, 235 þriðju og 196 fjórðu verð-
laun; 263 töldust notandi, en 354 óhæfir.
Siðari tölurnar í röðinni eru allt of háar, en þær fremri of
lágar. Þær þurfa að hækka, en hinar að lækka, þvi að markið
er það, að sem flest af hrútum nái i fyrstu og önnur verðlaun.
Það er einkum í sveitunum austan Eystri Rangár — að undan-
skildum þó Mýrdalnum — og i Flóanum fyrir neðan þjóðveginn,
að bændur ættu að gera heldur meira að því, að kaupa að góða
hrúta. Og leita þá fyrst að þeim i uppsveitum Árnessýslu og
Borgarfjarðarsýslu. Um þetta hefi eg rætt við menn á sýningun-
um og sleppi að fjölyrða um það hér.
Hér skulu nú taldir eigendur hrútanna, sem fengu 1. verðlaun:
í Hraungerðishreppi: Illugi Jóhannsson, bóndi á Laugum. Kvað
hann hrútinn vera heima alinn, en þó eitthvað kynjaðan frá Lang-
holti. í Gnúpverjahreppi: Gestur Einarsson á Hæli. Yar hrútur-
inn keyptur í fyrrahaust frá Einari Halldórssyni á Kárastöðum i
Þingvallasveit fyrir 120 krónur, þá 2 vetra. Þetta var bezti hrút-
urinn, sem kom á þessar sýningar. Þó er lítill munur á honum