Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Side 118
Snar þáttur þessa verkefnis var að láta reyna á þær aðferðir sem hér hefur verið
lýst og ætlað er að meta félagslegar aðstæður og starfsskilyrði í grunnskólum. Beiðni
um þátttöku var yfirleitt vel tekið af stjórnendum og starfsfólki skólanna, þrátt fyrir
ónæði og fyrirhöfn sem verkefninu hefur fylgt. Fulltrúar úr skólanefndum og sveit-
arstjórnum hafa ekki síður sýnt verkefninu áhuga og hafa greitt beinan kostnað sem
fylgdi fyrirlögn spurningalista og innslætti svara.
Þátttaka í viðhorfakönnun GÓB-verkefnisins hefur verið allgóð, ekki síst meðal
foreldra. Hafa ber í huga að skólarnir höfðu engan beinan ávinning af þátttöku í verk-
efninu, hvorki í formi ráðgjafar eða annars stuðnings en skólarnir sem tóku þátt í
þriðju umferð fengu þó ítarlega kynningu og skýrslu um niðurstöður.
Umræðuefni lokaviðtals hafa langoftast vakið áhuga viðmælenda. Þau eru að vísu
almenn og víðfeðm en virðast skipta viðmælendur máli og allir starfendahópar
höfðu skoðanir á þessum efnum og létu þær oftast skýrt í ljós. Hver starfendahópur
ræddi málið út frá sínum forsendum og sjónarhóli. Foreldrar voru yfirleitt mjög
áhugasamir viðmælendur sem beindu sjónum einkum að skólanum og gæðum
kennslunnar. Nemendur voru misáhugasamir og upplýstir um skólastarfið í heild en
margir lýstu viðhorfum sínum skilmerkilega og höfðu ákveðnar skoðanir á því hvað
skipti máli í góðu skólastarfi. Full ástæða er fyrir skólana að taka tillit til sjónarmiða
nemenda eins og vikið var að hér að framan. Starfsfólk, annað en kennarar, hafði oft
talsvert aðra sýn á skólastarfið en aðrir starfendur, það hefur á vissan hátt beinni og
persónulegri kynni af nemendum en kennarar og lítur vanda þeirra öðrum augum.
Segja má að viðhorf þessara starfendahópa endurspegli þau félagslegu öfl sem
miklu ráða um hvernig grunnskóla tekst að rækja hlutverk sitt. Hverjum skóla er
mikilvægt að hlusta eftir þessum röddum og taka mið af þeim viðhorfum sem þar
koma fram þegar áherslur í skólastarfi eru mótaðar.
Þriðja umferð GÓB-verkefnisins haustið 2003 á Norðurlandi gekk að ýmsu leyti
greiðar fyrir sig en fyrri umferðir. Það var að miklu leyti að þakka skipulegum
stuðningi frá skólaþróunardeild kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Gerð
spurningalista var þá komin í endanlegt horf og formsatriði um framkvæmd lágu
skýrt fyrir. Þetta tryggði þó ekki endilega meiri þátttöku starfenda. Reynsla verk-
efnisstjóra, sem tók öll lokaviðtölin, bendir til að ætla þurfi lengri tíma í hvert viðtal,
a.m.k. 11/2 klst., og gefa þarf viðmælendum kost á að kynna sér upplýsingar sem fyrir
liggja áður en viðtal hefst.
Eins og áður kom fram tókst ekki að kanna starfsskilyrði skóla samkvæmt þriðja
verkþætti GÓB-verkefnisins nema liðina um starfsreynslu og menntun starfsfólks og
félagslegan bakgrunn nemenda. Þær upplýsingar liggja fyrir þó ekki sé fjallað sér-
staklega um þær hér. Ítarleg könnun á starfsskilyrðum er samt mikilvæg ef leggja á
heildarmat á notagildi þessa verkefnis og væri það eitt næg ástæða til að leggja vinnu
og fjármagn í að þróa aðferðina áfram og meta hverju hún getur skilað.
G R U N N S K Ó L A R Í Ó L Í K U M B Y G G Ð A R L Ö G U M
118