Morgunn - 01.12.1921, Page 17
M OKGUNÍT
137
í kirkjugarðinn og grátið þar beisklega við gröf litla
bróður BÍns og skrifað honum stutt bréf með blýant á
pappirsblað og >ýtt því ofan í moldina á gröfinni með
stafbroti«. Gordon bað mömmu sína að fara til Tonbridge
og heimsækja drengina og koma Eric í skilning um, að
hann lægi alls ekki i gröflnni.
Daginn eftir heimsótti hún drengina. Þegar hún
sagði Eric, hvað skrifað hefði verið, varð hann agndofa af
undrun og vildi varla trúa því, en játaði, að það væri dagsatt.
Skrifað hafði verið í Lundúnum á sömu klukkustundunni
og hann stóð við gröfina, og Eric bætti við: »og eg var
aieinn i kirkjugarðinum« Annað sinn hafði Eric verið
leyft að dveljast í sumarleyfi niður við 6jóinn í nokkurar
vikur. Þá skrifaði Gordon eitt sinn heiraa hjá móðurinni,
og virtist dapur út af einhverju, og kvaðst hafa sorgar-
fregn að flytja af Eric. Móður hans varð bilt og hélt
að slys hefði komið fyrir Eric. Nei, sagði Gordon; hann
væri heilbrigður, en hann hefði hegðað sér mjög illa.
Skotsilfrið hans hefði verið gengið upp og hann hefði.
fyrir tveim dögum farið inn í veðlánarabúð og veðsett
þar gullhylkið utan af blýantinum sínum fyrir 3 sh. 6 d.
og silfurhylkið utan af eldspýtustokknum sínum fyrir álíka
upphæð. Gordon virtist — af skriftinni að dæma —
vera mjög áhyggjufullur út af öðru eins athæfl. Hann
kvaðst hafa »reynt að stöðva hann« og beðið hann að gá
að, hve þetta mundi liryggja mömmu, en hann hefði ekki
viljað hlusta á sig. Móðirin varð ekki hrygg út af at-
liæfi Erics, en hana langaði mjög til að fá fulla vísbu um,
hvort þetta væri satt. Hún skrifaði syni sínum þegar í
stað. Þegar svarið kom, gátu þær Nellie ekki varist
hlátri. I svarinu stóð meðal annars þetta: »1 raun og
sannleika, nú þykir mér skörin fara að færast upp í
bekkinn! Hann virðist vita alt, sem eg geri, og hann
segir þér það. Það er auðvitað mjög undursamlegt,
inamma, og eg skil, hvers virði þér er þetta. Þú sér, að
hann er alls ekki dauður. Nú ættir þú að vera alveg