Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 40
160
MORGUNN
sagði, að foreldrum sínum myndi hlotnast happ, og að
faðir sinn myndi bráðum fara að sjá sig Þrem dögum
síðar fekk hr. Norman ávísun sem borgun fyrir lög, er
hann hafði aldrei búist við að sjá prentuð, og gæti það
verið >happið«.
Eftir þetta komu skeytin mest frá Monicu þótt sjá
mætti á ýmsu, að Kathleen væri i nánu félagi við hana
um þau. Þann 3. júni ritaði Monica með hendi móður
sinnar:
>Ástkæru elskurnar mínar! Þið megið vera viss um,
að guð mun hjálpa ykkur, ef þið hafið trú Við biðjum
einnig með ykkur. Eg elska ástvini mína svo heitt
Eg segi ykkur, að eg elska afa og Kathleen og Zoru og
Winnie og marga hér — ástvini ykkar — marga af ást-
vinum pabba. Pabbi hans er elsku-afi minn, sem mér
þykir vænt um. Guð blessi ykkur öll. Bænir Cissie
segja henni það. Ykkar elsku-litla Mermaid (hafgúa)*.
Cissie var systii' Monicu; oft minti Monica hana á
bænirnar sínar, og eínu sinni eða tvisvar sagði Monica,
að Cissie hefði gleymt að lesa bænirnar sínar, Það var
rétt, og foreldrunum var ókunnugt um það.
Hver Zora var, vissu þau hjónin ekki. Þau spurðu
Monicu um það og fengu það svar, að hún hefði einu
sinni verið prinsessa, en væri nú andi, eins og Monica
sjálf. Seinna sagði hún, að Zora hefði »haldið lengra
áfram*. Ekki vita þau, hvað það átti að merkja.
Þann 6. júní ritaði Monica; »Mór þykir vœnt um,
ástirnar ininar, að sjá ykkur svo glöð. Pabbi heyrir nú
til mín, þegar eg hvisla að honum. Eg vil vera mikið
með honum, eins lengi og eg get. Sumir fara burt. Eg
vil það ekki enn þá. Eg heii mikið að gera enn. Ef
nokkur kemur, ætla eg að taka á móti bonum. Eg elska
ástvini mína svo heitt. Biðjið — biðjið ávalt fyrir okkur.
Eg veit, að þið gerið það. Þið vitið, að eg elska ykkur
öll. Góða nótt, elskurnar mínar. Ykkar ástkæra Monica«.
Faðir Monicu varð smátt og smátt fær um að