Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 48
168
MORGUNN
Þótt svona stór sé mismunurinn, eru fjármunirnir ekki for-
dæmdir; þeir eru dýrmæt guðsgjöf og rétt notaðir geta
þeir verið lyklar að dyrum himnaríkis
En Kristur þekkir veika burði mannlegrar þekkingar
og mannlega vilja, og hann þekkir ofurvald freistaranna
á reikulum og óstöðugum mannssálum, og að þeir ráðast
þar á, sem veikust er vörnin. Hann þekkir ofurást ald-
arandans á fjármunum; þess vegna varar hann svo oft
við að láta þá fá taumhaídið á mannssálunum, að þær
missi ekki sjónar á aðalhugsjón lifsins, að eignast eilíft Uf.
Með upprisu sinni og himnaför hefir hann sannað
að málsstaður hans var réttur, lif var til eftir dauðann.
0g þótt mannleg þekking sé enn of skamt á veg komin til
að útskýra slikt dularfyrirbrigði, svo að öllum sé fullnægt,
þá hafa jafnvel svæsnustu vantrúarmenn ekki getað ó-
sannað upprisuna, svo að hún stendur enn sem bjargfastur
sögulegur sannleikur, þrátt fyrir árásir. Fyrir tæpum 19
öldum fór fram stærsta sönnunin fyrir ódauðlegu lífi, og
kristileg kirkja heíir gjört þennan atburð að hornsteini
sínum.
Nú, 19 öldum eftir hinn mikla atburð, rís upp, innan
veggja kristilegrar kirkju, stefna eða stefnur, er segjast
geta framvísað sönnunum, fjölda af sönnunum fyrir ó-
dauðleika kenningunni, kenningunni þeirri, sem kirkja
Krists hefir prédikað í 1900 ár, sem fjölda mannsálna
hefir verið einka bjargráð í stormum og hafróti lífsins,
en sem einnig fjöldi manna hefir litils metið og talið hé-
gómamál eitt, tilhæfulausan heilaspuna. Stefnurnar þessar
gjöra meira, þær setja þetta jarðlíf vort í svo náið sam-
band við lífið eftir dauðann, að hér er sáð, þar uppskorið,
og uppskeran fer eftir útsæðinu Fyrir mínum eyrum
og mínum skilningi er þetta engin ný kenning, mér
finst það i höfuðdráttunum vera nákvæmlega það sama
og kirkjan hefir verið að kenna í 19 aldir, og eg hefi
sjálfur verið að kenna nú i nálega hálfa öld.
Um sannauir hinna nýju stefna skal eg ekkert segja.