Morgunn - 01.12.1921, Side 120
240
M 0 R G U N N
Enginn vafi getur leikið á urn mikilvægi og gagn-
semi þessara rannsókna. Fyrst og fremst kemur vitan-
lega hér til greina sú hlið málsins sem eingöngu er
ví8indaleg: Skýringin á eðli og örsökum þessara fyrlr-
brigða, sem haldið er fram að gerist. En auk þesa er
bersýnilegt, að sú stefna, sem dómurinn um þessi fyrir-
brigði tekur, hlýtur að hafa afarmikil áhrif á þá hug-
mynd, sera mennirnir gera sér um alheiminn og á
afleiðingarnar í kenningum og breytni, sem hljóta að
vera þeirri hugmynd nátengd.
En nú verður því ekki neitað, að rólegri og óhlut-
drægri vísindalegri aðferð hefir mjög lítið verið beitt i
meðferð þessara fyrirbrigða, en hitt er annarsvegar ómót-
mælanlegt hversu gagnsemi slíkra rannsókna væri mikil,
ekki síst fyrir þá sök, að auðsjáanleg hætta er á, að
rannsókn þessara efna (Sálarrannsóknirnar) blandist sam-
an við þokukenda dultrú, megna hjátrú og einfeldnislega
efnishyggju.
Vér undiritaðir lítum þessvegna svo á, að það mundi
vera nokurs um vert fyi'ir málið, ef flokkur mikilsmet-
inna og hæfra manna frá ýmsum löndum og úr ýmsum
fræðigreinum hittust og ættu tal um aðferðir og árangur.
Vér erum þeirrar skoðunar, að slíkur fundur mundi
koma í veg fyrir mikla óþarfa vinnu er fleiri gætu
þegar i stað notfært sér reynslu þá, sem þegar er fengin;
og vér lítum einnig svo á, að greinargjörð fyrir skoðun-
um og hugmyndum, er lúta að þeirri heimsmyud, þar
aem sálarrannaóknirnar væru einnig teknar til greina
af hendi náttúruvísindamanna, sálarfræðinga og heim-
spekinga, mundi verða til þess að leiðbeina á marga lund
og varpa ljósi yflr margt, sem nú er í þoku. Vér leyfum
osb því, vegna þess að vér lítum svo á, að þessu verði
auðveldast í framkvæmd komið af hlutlausu landi, að
stíga fyrsta sporið í þessa átt og bjóða yður til alþjóða-
fundar fyrir sálarrannsóknir i Kaupmannahöfn frá 26.
ágúst til 2. september (að báðum dögum meðtöldum) 1921.