Saga - 2001, Blaðsíða 31
HIN KARLMANNLEGA RAUST
29
Undirbúningurinn að tónlistarflutningi á hátíðinni sýndi þá
löngun og þörf að gera samtakamátt íslenskra karlmanna í senn
sem sýnilegastan og mestan. Frá upphafi var ljóst að allur söngur
yrði fluttur af karlakór. Sú hugmynd vaknaði snemma að mynda
landskór, sem síðar var kallaður Þingvallakórinn. Hann skyldi
skipaður útvöldum fulltrúum úr helstu karlakórum landsins.
Varð þessi hugmynd hvati að stofnun Sambands íslenskra karla-
kóra 1928 og var undirbúningur söngmótsins 1930 fyrsta verkefni
Sambandsins. Sex karlakórar sungu á Alþingishátíðinni, Karlakór
K.F.U.M., Karlakór Reykjavíkur, Söngfélag stúdenta, allir úr Reykja-
vík, Söngfélagið Geysir frá Akureyri, Karlakórinn Vísir frá Siglu-
firði og Karlakór ísafjarðar. Allir þessir kórar voru stofnfélagar
Sambands íslenskra karlakóra.76
Efnt var til samkeppni um hátíðarljóð, sem opin var öllum Is-
lendingum. Þegar verðlaunaljóðið hafði verið valið var síðan efnt
til samkeppni um lög við verðlaunaljóðið, sem flytja átti á hátíð-
inni.77
Sigurvegarar í ljóðakeppninni urðu þeir Davíð Stefánsson og
Einar Benediktsson, sem báðir fengu fyrstu verðlaun, og Jóhann-
es úr Kötlum, sem fékk önnur verðlaun.78 Dómnefndin ákvað síð-
an að ljóðaflokkur Davíðs yrði sunginn á Alþingishátíðinni og var
efnt til samkeppni um lög við ljóðaflokkinn meðal nokkurra ís-
lenskra tónskálda. Fór svo að Páll ísólfsson varð hlutskarpastur
og voru hátíðarljóðin flutt af Þingvallakórnum undir stjóm Páls
sjálfs á fyrsta degi hátíðarinnar.79 Þótt lag Páls við hátíðarljóð
Davíðs væri eina fmmsamda tónverkið sem flutt var við hátíðina,
voru aðeins íslensk lög í þjóðlegum stíl á söngdagskrá hátíðar-
mnar. Það voru sungnar rímur, tvísöngslög og vikivakar, lög sem
heyrðust annars sjaldan.80
Fjórtán ámm síðar var aftur haldin þjóðhátíð á Þingvöllum,
Lýðveldishátíðin 1944.
Á þjóðhátíð, þar sem þjóðin fagnar fengnu frelsi, hlaut að vera
76 Ólafur Pálsson, „Samband íslenzkra karlakóra 10 ára , bls. 27.
77 Magnús Jónsson, Alþingishátíðin 1930, bls. 172.
78 Sama heimild, bls. 62.
79 Sama heimild, bls. 62 og 137.
80 Sama heimild, bls. 214-15 og 217.