Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 148
146
Helga Kristjánsdóttir (2. kennari).
Þórhallur Björnsson (aukakennari).
Árný Filippusdóttir (aukakennari).
Guðfinna Jónsdóttir (tímakennari).
Arnór kendi íslenska bókmentasögu og málfræði í báðum
deildum, hélt 2 fyrirlestra í viku fyrir báðar deildir sameigin-
lega um ýmisleg efni, kendi Islandssögu í yngri deild og mann-
kynssögu í eldri deild. Konráð kendi reikning, landafræði og
grasafræði í báðum deildum, dönsku þeim, sem lengst voru
komnir og heilsufræði í yngri deild. Helga kendi upplestur
ensku alla og dönsku byrjendum. Þórhallur kendi smíði, sund
og teikningu að nokkru. Árný kendi sauma, tarsóvinnu, teikn-
ingu að nokkru og' dönsku einum flokki (miðflokknum). Guð-
finna kendi söng og nokkrum nemendum að leika á orgel.
Kenslunni var pannig hagað:
Ein kenslustund var sameiginleg fyrir báðar deildir fyrst á
hverjum morgni. Auk þess var söngur sameiginlegur fyrir báð-
ar deildirnar, fyrirlestrar sem gestir héldu og í dönsku og'
ensku var nemendum skift í flokka eftir kunnáttu en ekki eftir
deildum. Að öðru leyti fór kenslan fram í tveimur deildum,
yngri deild og eldri deild. í yngi'i deild var nemendum skylt að
taka þátt í öllum þeim námsgreinum, sem í deildinni voru kend-
ar og að auki sameiginlegu námsgreinunum, nema ensku og'
dönsku, og tóku þó allir þátt í öðruhvoru því ínáli, en 3 í báðum.
í eldri deild var ekki annað skyldunám en íslenska. í þeirri deild
völdu flestir nemendur sér aðalnám og, er leið á veturinn, kjör-
svið í þeirri námsgrein (sjá prófskýrslu)
I. Sameiginleg kensla fyrir báðar deildir.
1 s 1 e n s k a (bókmentir).
Lesin Lestrarbók S. Nordals, bls. 28—266, og rætt um alla
helstu höfundana í kenslustundunum og' skýrð kvæði og sögur.
2 stundir í viku.
Grasafræði.
Lesnar Plönturnar eftir Stefán Stefánsson, öll bókin. Þurk-
aðar plöntur notaðar við kensluna. 2 stundir í viku.