Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Blaðsíða 156
138
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
ina. Á þessu móti flutti séra Jakob Jóns-
son skyndi ræðu um útbreiðslu áhrif Is-
lendinga í þessu landi — á þjóðerni sínu
i hversdagslífi. Var ræðan hin snjallasta
að efni og flulningi.
Þá studdi deildin að fyrirlestri, er séx-a
Kristinn ólafsson flutti um maimfélags-
mál. Var fyrirlesturinn afbragðs vel sam-
in og fluttur, og álítum vér að fleiri prest-
ar mættu leggja frá sér guðspjöllin við og
við og snúa sér að okkar veraldlegu
vandamálum. (Þetta eru sérskoðanir rit-
ara).
Siðasta samkoma deildarinnar var hald-
in s. 1. nóv. Séra Jakob flutti ræðu og
upplestur. Lárus Nordal og Bjöm Ax-
ford fluttu kvæði. Séra Jakob hefir altaf
verið boðin og búin að styðja deildina og
hefir það verið mikill styrkur við sam-
komuhöld. Vottar deildin hér með séra
Jakob sitt bezta þakklæti.
Bókasafn deildarinnar hefir verið starf-
rækt eins og að undanförnu, aðal safnið að
Leslie og fjögur útibú að Foam Lake, El-
fros, Kristnes og Hólar. Vegna fjár-
skorts hafa engar nýjar bækur verið
keyptar þetta ár. Mun eitthvað vei'ða
reynt að bæta úr þvi næsta ár. Skuld-
lausir meðlimir i deildinni s. 1. ár 41. —
Inntektir á árinu voru $66.50, en útgjöld
$64.75. Stjórnarnefnd: Páll Guðmunds-
son, forseti; Rósm. Ámason, ritari; Lárus
Nordal, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Páll
Magnússon, Þorst. Guðmundsson, Helgi
Steinberg og Jón ólafsson.
I sjóði við árslok $22.00.
Með beztu kveðju til þingsins.
R. Árnason, ritari
Guðm. G. Goodman las eftirfylgjandi
skýrslu frá deildinni “Fjallkonan” í Wyn-
yard:
Skýrsla deildarinnar “Fjallkonan”
Það er aðailega tvent, sem deildinni
“Fjallkonunni” finst þess vert að minnast
á, af starfi sínu, á siðasta ári. Er annað
þáttur sá, er deildin hafði í því, að votta
skáldinu J. M. Bjarnasyni viðurkenningu
á sjötugasta afmælisári hans, þ. 24. maí
síðastliðinn. Hitt er Islendingadags há-
tíðahaldið. Eftir að deildin hafði ráð-
fæi't sig við Þjóðræknisfélagið, sem óskaði
þess, að deildimar hér vestra, tækju að sér
aðalvandann og starfið í þessu afmælis-
máli, en hétu þeim á móti stuðningd sínum.
Gekkst deildin fyrir því, í samráði við
deildina í Leslie, að fjölmenn nefnd var
skipuð í málið, og var þar ekkert hirt um
merkjalínur. Deildin hér hefir ávalt skoð-
að sig sem Islendingahóp, er bæði er
viljug að þiggja aðstoð góðra Islendinga, í
hverju því er hún tekur sér fyrir hendur,
og eins viljug að leggja lið etfir megni
hverju því fyrirtæki er hún álítur okkur
til gagns eða sóma, án tillits til þess
hvaða sérflokki þeir kynnu að tilheyra.
Samt sem áður, heyrir maður deildiimi
brugðið um klíkuskap, en það bítur lítið
á okkur, þvi við finnum það er ekki satt.
Formaður þessarar afmælisnefndar, er
skipuð var af deildunum hér, var dr. Kr.
Austman, og skrifari séra Jakob Jóns-
son. Hélt nefndin nokkra fundi og virtist
lengi vel að meirihluti nefndarmanna vera
því fylgjandi, að stóreflis samkoma yrði
sett á stofh, þar sem öllum bygðarmönn-
um og Islendingum hvaðanæfa væri boðið
að koma, og taka þann þátt í er hver
kysi sér, bæði í fégjöfum og öðru, en
nokkrir nánustu vinir skáldsins og þar á
meðal formaður nefndarinnar, dr. Kr.
Austmann, töldu það ekki ráðlegt. Kvað
hann þau hjónin ekki vera gefin fyrir, að
sér væri hossað eða hrósað opinberlega,
og taldi jafnvel að heilsu skáldsins gæti
verið hætta búin, ef í þetta væri ráðist.
Var þá tekið það ráð að einstöku mönn-
um, víðsvegar um bygðir Islendinga vai
skrifað, og mintir á atburðinn, og boðið
að vera þátttakendur á hvern þann hátt
er þeir helzt kysu. Voru undirtektir svo
góðar að undrum sætti, og eru hinn greini-
legasti vottur, um þær vinsældir og að-
dáun, er skáldið nýtur, hvarvetna meðal
Islendinga. Afmælisdaginn þ. 24. maí
fóru nokkrir menn, er útnefndir höfðu
verið af afmælisnefndinni ásamt tveimui'
fulltrúum frá Þjóðræknisfélaginu og fluttu
skáldinu hamingjuóskir. ásamt fégjöf
nokkurri. Þakkaði skáldið, á sinn góð-
mannlega hátt, heimsóknina, gjöfina, heið-
urinn, en þó fremur öllu, velvildina og
vináttuna, er hann taldi dýrmætasta allra