Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Blaðsíða 163
ÁTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
145
sé inn í hann orðunum: “innan Þjóðræknis-
félagsins” á eftir orðinu “lestrarfélaga”.
Þriðji liður. Uppástunga Á. Eggeit-
sonar, studd af Thorl. Thorfinnssyni, að
vísa liðnum til fjármálanefndarinnar. —
Samþykt.
Fjórði liður. Umræður: S. Vilhjálmsson.
G. Arnason lagði til að vísa liðnum aftur
t'l nefndar. Stutt af B. Fdnnssyni öl.
Pétursson, sem var einn af nefndarmönn-
um lagði til að liðurinn væri feldur burt.
Sá tillaga var studd af S. Vídal. Frekari
umræður urðu um liðinn og tóku þátt í
Þeim Sigm. Laxdal og Asm. P. Jóhannsson,
sem skýrði frá þvi sem hann hefði gert
í þessu máli. Tillaga ól. Péturssonar og
S. Vídal samþykt.
Pimti liður samþyktur eftir tillögu S.
Laxdals og G. Goodmans.
Minjasafnsmál.
Nefndarálit var lesið af B. E. Johnson.
Nefndin álítur að þefcta sé eitt af nauð-
synja fyrirtækjum Þjóðræknisfélagsins og
leggur hún því til:
l. Að umgetningar um safnið séu af
°g til birtar í islenzku blöðunum, svo al-
ruenningur hafi vitneskju um málið og
geti þvi frekar safnað og sent muni í
safnið.
2- Að strax og stjórnarnefnd félagsins
alitur að vísir safnsins sé orðinn nægilega
stéi þá sé safninu komið fyrir á fjöl-
istasafni Winnipeg og opnað fyrir al-
uienning.
Að stjórnarnefnd félagsins sé falin
umsjón og framkvæmdir þessa máls á
aomandi ári.
Bergthór Emil Johnson
G. G. Goodman
Friðrik Sveinsson.
Tiliaga J. j. Bildfells og St. Jóhannsson-
ai að nefndarálitið væri samþykt í heild
Slnni, eins og það var lesið. Tillagan
samþykt.
Pá hóf Arni Eggertson máls á því, að
Vl<5eigandi væri, að nafnaskráningarbók
Væii haldin yfir þingtímann, svo að bæði
u trúum, félagsmönnum og gestum, sem
s öðugt sætu á þinginu gæfist kostur á
að rita nöfn sín í hana. Sagði hann, að
bending til sin í þessa átt hefði komið
frá hr. Sveini Thorvaldssyni. Forsetinn
gat þess, að áður hefði þetta verið gert,
en að siðurinn hefði lagst niður. Sveinn
Thorvaldson tók til máls og hvafcti til að
þetta væri gert. G. Árnason lagði til, að
féhirði félagsins væri falið, að kaupa
skrásetningabók nú þegar og hafa hana
til taks í byrjun næsta fundar. Tillagan
var studd af B. E. Johnson og samþykt.
Samviiuiumál.
Dr. Richard Beck las nefndarálitið í
samvinnumálinu. I sambandi við þetta
nefndarálifc voru lesin bréf frá ungfrú
Halldóru Bjamadóttur >á Islandi, -frú
Ingibjörgu Ólafsson í Arborg, frú Kirstínu
ólafsson að Garðar, N. Dak., formanni
Norræna félagsins á Islandi og Ragnari
E. Kvaran, formanni ferðamannaskrif-
stofu Islands.
Alit samvinnumálanefndar
Samvinnumálanefnd leyfir sér, að gefa
eftirfarandi tillögur:
1. A. Viðvíkjandi tilmælum fröken
Halldóru Bjarnadóttur um stuðning frá
Þjóðræknisfélaginu til væntanlegrar ferð-
ar hennar vestur um haf, fyrirlestrahalda
og sýninga á íslenzkum iðnaði, leggur
nefndin til, að Þjóðræknisfélagið greiði á
allan hátt götu hennar, eftir megni, og
eigi um það samvinnu við kvenfélög
beggja íslenzku kirkjufélaganna hér, Jóns
Sigurðssonar félagið og heimilisiðnaðar
félag íslenzkra kvenna vestan hafs.
B. Enrifremur leggur nefndin til, að á
þessu þingi séu kosnar tvær konur til að
vinna að þessu máli fyrir hönd Þjóð-
ræknisfélagsins í samvinnu við nefndir
frá fyrnefndum félögum.
C. Að tilgreind nefnd Þjóðræknisfé-
lagsins starfi í samráði við stjórnarnefnd
þess að ráðstöfun á komu fröken Hall-
dóru og fyrirlestraferðum hennar hér.
2. Nefndin telur sig hlynta hugmynd-
inni um skifti á íslenzkum og vestur-ís-
lenzkum unglingum til sumardvalar, sem
rædd hefir verið i fyrirliggjandi bréfum
milli séra Jakobs Jónssonar og Guðlaugs
Rósinkranz, formanns Norræna félagsins