Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Blaðsíða 161
ÁTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
143
4. Þingið vottar ritstjórum nefndra
rita og öðrum starfsmönnum við þau
þakklæti fyrir vel imnið starf.
Á Þjóðræknisþingi 23. febr. 1937.
Richard Beck
B. E. Johnson
K. Indriðason
S. W. Melsted
Þorst. Gíslason
Fred Swanson
Á. P. Jóhannsson lagði til, að álitið
væri tekið fyrir lið fyrir lið. Tillagan
var studd af Mrs. M. Byron og samþykt.
Pyrsti liður var lesinn og samþyktur.
Um annan lið urðu miklar umræður, og
tóku þátt í þeim dr. Richard Beck, Guðm.
Eyford, A. P. Jóhannsson, Hjálmar Gisla-
son, Guðm. Árnason, Sigm. Laxdal og for-
setinn. Á. P. Jóhannsson lagði til, að lið-
urinn væri feldur burt, og Thorst. Gíslason
studdi. Tillagan var feld með 20 atkv.
gegn 14. Tillaga G. Ámasonar og H.
Gislasonar, að samþykkja liðinn var sam-
þykt.
Á. P. Jóhannsson lagið til og B. E.
Johnson studdi ,að þriðji liður væri sam-
Þyktur, eftir að orðalagi hans hafði dá-
lítið verið breytt. Tillagan var samþykt.
Pjórði liður var samþyktur eftir tillögu
Á. P. Jóhannssonar og S. Vilhjálmssonar.
Þá gerði dr. Beck tillögu um að sam-
þýkkja nefndarálitið í heild sinni. Tillag-
an var studd af Margrétu Byron og sam-
Þykt.
G. Árnason og B. E. Johnson gerðu til-
fögu um að fresta fundi til kl. tvö. Til-
lagan samþykt.
Eundi slitið.
FJÓRÐI FUNDUR
Ejórði fundur hins átjánda ársþings
Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi
var settur af forseta kl. tvö síðdegis
þriðjudaginn 23. febr. 1937.
Eundarbók var lesin og staðfest.
Þá var álit fræðslumálanefndarinnar
^agt fram og lesið af Thorl. Thorfinnssyni.
Fræðslumál.
Nefndin sem skipuð var til þess að at-
buga fræðslumál Þjóðræknisfélagsins,
leggur til:
1. Að haldið sé áfram að stuðla að
kenslu í íslenzkri tungu, og íslenzkum
fræðum, á líkan hátt og að undanförnu.
2. Að tilraun sé gerð til þess að vekja
áhuga og umhugsun æskulýðsins í Win-
nipeg og nærliggjandi bygðum (sem af
íslenzkum stofni er sprottinn) á ættlandi
sínu og ættararfi, með þvi að fá, ef unt
er, hæfa unga íslenzka menn, eða meyjar,
til að ferðast um og flytja erindi um
þjóðernisleg efni á meðal hans og með
litmyndum að skýra og skerpa skilning
æsku fólks, sem fætt er í þessari álfu, á
landi og lifnaðarhtátum þjóðarinnar.
3. Það eð knýjandi þörf virðist vera
ríkjandi á meðal menta- og námsfólks í
Vesturheimi að eigd kost á að nema mál
feðra sinna og kynnast íslenzkum bók-
mentum, betur og meira en það hefir átt
kost á. Þá leggjum við til, að væntan-
legri framkvæmdarnefnd sé falið að at-
huga hvort ekki séu tök á að námsskeið sé
stofnað undir umsjón Þjóðræknisfélagsins
til að fullnægja þeirri þörf, og ef tiltæki-
legt virðist, þá að sjá um að slíkt náms-
skeið sé stofnað eins fljótt og unt er.
4. Að þingið þakki öllum þeim, er
stutt hafa að fræðslumálunum í Winni-
peg og annarstaðar.
Th. Thorfinnsson
J. J. Bíldfell
Mrs. B. E. Johnson
Guðm. Ai'nason lagði til og Philip John-
son studdi, að álitið væri tekið fyrir lið
fyrir lið. Samþykt.
Fyrsti liður var samþyktur samkvæmt
tillögu frá J. B. Johnson og Thorst.
Gislasyni.
Annar ligur. Á Eggertson og S. Vil-
hjálmsson gerðu tillögu um að samþykkja
hann. G. Arnason og B. E. J-ohnson bentu
á, að réttast mundi vera, að vísa þessum
lið til fjármálanefndar. J. J. Bíldfell gaf
skýringar við liðinn. Thori. Thorfinnsson
tók einnig til máls um hann. Breytingar-
tillaga B. E. Johnsons og Mrs. M. Byron,
að vísa liðnum til fjármálanefndar. Sam-
þykt.
Þriðji liður. Tillaga J. J. Bíldfells og
Sigm. Laxdals, að vísa þessum lið til fjár-
málanefndar. Umræður: Á. P. Jóhanns-
son. Tillagan samþykt.