Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Síða 164
146
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
í Reykjavík. En þar sem um mikinn
undirbúning- og fjárhagsleg-an tilkostnað
er að ræða, sér nefndin sér ekki fært
annað, en að vísa málinu til stjórnar-
nefndar félagsins til frekari ráðstafana, ef
mögulegt er.
3. Nefndin leggur til, að stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins sé falið áframhald-
andi starf í samvinnumálum, sem að við-
skiftum lúta, milli Islands og Ameriku.
4. I tilefni af beiðni ferðamanna og
landkynningarskrifstofu Islands (Stat-
Tourist) um aðstoð Þjóðræknisfélagsins
við, að vekja athygli á skrifstofunni og
umboðsmönnum hennar, leggur nefndin
til að stjórnarnefndinni sé falið að veita
skrifstofunni allan þann, stuðning, sem
föng eru á.
Á Þjóðræknisþingi, 23. febr. 1937.
Richard Beck
Guðm. Ámason
S. W. Melsted
Á. P. Jóhannsson
Tillaga G. Árnasonar að taka nefndar-
álitið fyrir lið fyrir lið, studd af G. Good-
man og samþykt.
Fyrsti liður. Umræður: Mrs. Dr. S. E.
Björnsson kvaðst enn elcki hafa haft
tíma til þess að bera þetta mál undir
stjómarnefnd kvenfélagsambands hins
sameinaða kirkjufélags, en að þær konur
úr kvenfélögunum, sem hún hefði átt tal
við, væru því allar hlyntar. Mrs. Guðrún
H. Johnson sagðist álíta ,að vel ætti við að
Jóns Sigurðssonar félaginu væri boðið að
vera þátttakandi í þessari fyrirhuguðu
móttöku ungfrú Halldóru Bjarnadóttur.
Forseti Jóns Sigurðssonar félagsins, Mrs.
Guðrún Skaptason tjáði sig því meðmælta
fyrir hönd félagsins, að það væri með í
þessu. I sama streng tóku Mrs. Sophía
Wathne, fyrir hönd heimilisiðnaðarfélags-
ins; Mrs. Finnur Johnson, fyrir hönd sama
félags, og Mrs. dr. öl. Stephensen fyrir
hönd hins lútherska kvenfélags.
G. Ámason og S. Vilhjálmsson lögðu til
að liðurinn væri samþyktur. Samþykt.
Annar liður. Thorst. Gíslason og Sigm.
Laxdal lögðu til að samþykkja. Samþykt.
Þriðji liður. Tillaga Sigm. Laxdals og
G. Goodmans að samþykkja. Samþykt.
Fjórði liður. Umræður: J. J. Bildfell, G.
Árnason, Sigm. Laxdal, Mrs. Guðr.
Skaptason og Sig. Melsteð. Tillaga S.
Vilhjálmssonar og Ph. Johnsons, að sam-
þykkja. Samþykt.
Þá fór fram kosning tveggja kvenna í
nefnd samkvæmt annari grein í fyrsta
lið í nefndarálitinu, og hlutu kosningu
Mrs. B. E. Johnson og Mrs. Guðrún Finns-
dóttir Johnson.
Féhirðir skýrði frá, að nafnaskráning-
arbókin væri komin. Tillaga G. Ámasonar
og B. E. Johnson að gefa stutt fundarhlé,
svo að menn gætu ritað nöfn sín í bókina,
og að svo yrði fundi frestað til kl. 10 næsta
dag. Samþykt.
Friðrik Sveinsson og Á. Eggertson voru
kosnir til að hafa eftirlit með nafna-
skránni.
Fundi slitið.
Frónsmót.
Áð kvöldi þess 23. var hin árlega skemti-
samkoma deildarinnar “Frón” haldin. Var
einkar vel til samkomunnar vandað. Að-
gangur var seldur, en svo var mikill mann-
fjöldinn, að tugir fólks urðu frá að hverfa.
Aðal ræðumaður samkomunnar var Mr.
Gunnar B. Björnsson frá Minneapolis, og
var hin ágæta ræða hans prentuð í blöð-
unum. Þá gaf dr. Rögnv. Pétursson fróð-
legar og skemtilegar lýsingar eftir upp'
hleyptu Islandskorti, er Mr. Soffanias
Thorkelsson hafði lánað. Forseti deildar-
innar, Ragnar H. Ragnar, hélt skörulega
inngangsræðu, ennfremur stýrði hann þar
karlakór og barnasöngflokk, er vakti
mikla hrifningu. Snildarkvæði frumsamáð
flutti ritstjóri Lögbergs, E. J. Jónsson,
og frú Sigríður Olson söng einsöngva öll-
um til óblandinnar ánægju. Þá flutti og
Lúðvik Kristjánsson frumsamin gaman-
kvæði að vanda. Eftir það fóru fram
veitingar i neðri salnum, og svo var dans-
að langt fram á nótt.
FIMTI FUNDUR
Fimti fundur hins átjánda ársþings
Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi
var sebtur af forseta kl. 10 árdegis mið-
vikudaginn þann 24. febr.