Hugur - 01.06.2008, Page 8

Hugur - 01.06.2008, Page 8
6 Inngangur ritstjóra frumsamdar af íslenskum heimspekingum. Svavar Hrafn Svavarsson gerir víð- reist um helstu stórvirki Platons í þekkingarfræðilegri greiningu sinni á frum- myndakenningunni. Hér er á ferðinni umfangsmikil ritskýring sem útlistar skilning Platons á frummyndunum, þann mun sem hann taldi vera á þeim og skynhlutum og ekki síst ástæður hans fyrir því að setja fram þessa áhrifamiklu kenningu sína. Viðfangsefni Eyju Margrétar Brynjarsdóttir í grein sinni „Skilið á milli“ er sá heimspekilegi vandi að gera ásættanlega grein fyrir huglægni. Eyja gerir úttekt á því hvernig tekið hefur verið á huglægni í nokkrum helstu kenningum þekk- ingarfræðinnar, þ.á m. samhengishyggju og afstæðishyggju, en leiðir að því líkur að nálgun þeirra sé á villigötum. Þar er gengið út frá því að huglægni geri kröfu um villulausan ágreining aðila sem eru ósammála um huglæga eiginleika, t.d. smekksatriði, þ.e. að þeir hafi báðir rétt fyrir sér. Að mati Eyju er hér þó um frumspekilegt afstæði að ræða sem sé ekki nauðsynleg forsenda fyrir því að gera ráð fyrir huglægum eiginleikum. Þema síðasta heftis Hugar var heimspeki menntunar. I afmælisheftinu heldur sú umræða áfram og vonandi er til að dreifa viðvarandi áhuga á þessu mikilvæga efni. I grein sinni í þessu hefti sýnir Olafiir Páll Jónsson með skemmtilegum hætti hvað felst í því að vera gagnrýnin manneskja. Hann færir sannfærandi rök fyrir því að hin klassíska ímynd af gagnrýninni manneskju sem einangruðum hugs- uði, líkt og listamaðurinn Rodin setti fram í samnefndri höggmynd, sé villandi, ófullnægjandi og jafnvel hættuleg. Raunverulega gagnrýnin manneskja þarf ekki einungis að vera hugsandi, heldur einnig virk í athöfnum sínum. Þannig gerir gagnrýnin jafnframt kröfu um siðferðilega ábyrgð og meðvitund um það sam- félagslega samhengi sem manneskjan hrærist í. Heimspeki í skólum hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu og er í talsverðum vexti. í febrúar 2009 fer til dæmis fram stór samnorræn ráðstefna um slíka heimspeki á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Islands. A meðal þeirra sem hafa látið til sín taka á þessu sviði er Jóhann Björnsson en í grein sinni í heftinu fj allar hann um þær heimspekilegu aðferðir og nálganir sem hann hefur hannað og beitt í grunnskólum í því skyni „að spilla æskunni" að hætti Sókrates- ar, þ.e. efla gagnrýna hugsun þeirra, skilningsþorsta og spurulsemi, nokkuð sem stjórnmálamönnum stendur jafnan mikill stuggur af,jafnvel í lýðræðissamfélagi þar sem slíkir eiginleikar ættu þó að teljast til nauðsynlegra dygða. Franski fyrirbærafræðingurinn Maurice Merleau-Ponty hefði orðið 100 ára í ár, hefði honum enst aldur, og af því tilefni var ákveðið að endurskoða og fínpússa þýðingu Páls Skúlasonar og Jóns Laxdals Halldórssonar á formálanum að einu þekktasta riti hans, Fyrirbœrafrœöi skynjunarinnar (Phénoménologie de la percep- tion), er út kom árið 1945. Mikill fengur er að því að þessi krefjandi texti birtist nú loks á prenti í endanlegri gerð, enda hefur hann verið notaður við kennslu við Háskóla íslands í óbirtu handriti um nokkra hríð. Við hóp þýðenda bætist nú Björn Þorsteinsson sem bar þýðinguna gaumgæfilega saman við frumtextann og lagði til ýmsar breytingar til bóta. Sami Björn er höfundur greinarinnar „Valsað um valdið" sem valsar allvíða um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.