Hugur - 01.06.2008, Síða 51
Tákn og merkingar í Breytingaritningunni - Yi Jing
49
eins og það birtist í efnisheiminum er ekki hreint yang og býr yfir nokkru yin-eðli.
Ennfremur er yin oft látið standa fyrir hið óæðra og verðminna, en yang fyrir hið
æðra og verðmæta, en þess ber að gæta að í frumspekilegri tvíhyggju sem þessari
getur verið um mjög óh'kar og afar einstaklingsbundnar og huglægar túlkanir að
ræða. I öllu fahi er grundvöllur táknkerfis Breytingaritningarinnar sexföldun þess-
ara velþekktu tákna, yin og yang, og hugmyndin er sú að samspil þeirra, sexgröfin
sem þau mynda og myndunarferlið sjálft, feli í sér ímyndir sem geti táknað öll
möguleg fyrirbæri og atvik miUi himins og jarðar.
Sexgröfin eru eins og fyrr segir 64 fy6) talsins, en þeim er ennfremur skipt í
tvennt, þ.e. svoköUuð efri og neðri þrígröf sem eru átta talsins og samanstanda
hvert um sig af þremur h'num. Þessi átta þrígröf eru að öUum h'kindum eldri en
sexgröfin og eru líklega frumstæðara form véfréttarinnar byggt á sömu grund-
vaUarhugmyndum en voru síðar tvöfölduð til að þjóna því hlutverki að tákna
aUa möguleika tilverunnar enn betur. Þrígröfin svoköUuðu eru á kínversku einnig
nefnd gua j£js, eða nánar tiltekið bagua /Víh, þ.e. gröfin átta, og sexgröfin liu shi si
gua /\fy[Z3±[' eða gröfin sextíu og fjögur. Meðfylgjandi tafia sýnir þrígröfin átta
og táknmyndir þeirra með íslenskri þýðingu er styðst við fræga þýðingu Richards
Wilhelm og Garys F. Baynes á nöfnum þeirra. Þegar þrígröfin sem byggja upp
sexgrafið eru eins uppi og niðri ber sexgrafið sama nafn og viðkomandi þrígraf.
íslcnska enska kín- verska línu- tákn náttúru- tákn fjölskyldan
hið skapandi Tlie Creative qian = himinn faðir
hið glaðværa Hie Joyuous & dui = stöðuvatn * yngsta dóttir
hið viðloðandi The Clinging m ii re eldur, sól miðdóttir
hið örvandi Tlie Arousing m zhen — þruma ffi elsti sonur
hið milda Tlie Gentle II xun = vindur, tré elsta dóttir
hyldýpið Tlie Abysmal ÍX kan = vatn, tungl miðsonur
kyrrð Keeping Still R gen = fjall lU yngsti sonur
hið móttækilega The Receptive ií kun :: jörð *S móðir
Fornar kínverskar goðsagnir segja frá goðsagnaverunni Fuxi I en hann og
maki hans gyðjan Nuwa/Z;$|S| voru mennsk fyrir ofan mitti en með skriðdýrshala
að neðan. Fuxi er sagður hafa hugsað upp þrígröfin átta er hann virti fyrir sér spor
dýra, en útvíkkun þeirra og myndun sexgrafanna er ýmist kennd við annan goð-
sögulegan forföður, Shennong eða hinn sögulega stofnanda Zhou-veld-