Hugur - 01.06.2008, Side 55
Tákn og merkingar iBreytingaritningunni - Yi Jing
53
Á eftir textunum við sexgröfin, sem eins og gefiir að skilja eru 64 talsins, eru
línutextarnir næstir að mikilvægi. Alls eru 384 (6 x 64) línur og hver með sinn
línutexta, auk þess sem fyrstu tvö sexgröfin sem eru qian, eða hreint yang, og kun,
eða hreint yin, hafa sérstakan h'nutexta til viðbótar fyrir tilvik þegar allar hnur eru
breytanlegar, þ.e. qian með 9 í öhum hnusætum og kun með 6 í öllum sætum. Því
eru textahnurnar alls 386 og þetta reglubundna táknkerfi og túlkunarfræði þess
byggir öll á grunni þeirrar heimsfræði að náttúran og samfélagið séu linnulaust
að breytast. Það er hið eðlilega ástand alheimsins. Þetta nefndu Kínverjar til
forna bianyi Hf-Jv sem mætti þýða sem „hverfulleiki“. Handan þessara breytinga,
sem kunna að virðast óræðar í fyrstu, er þó gert ráð fyrir vissum óbreytanlegum
lögmálum sem nefnd voru „hið óbreytanlega" eða buyi 'FJa. Með hagræðingu
táknrænna mynda þessara lögmála sem eru fyrrgreind gröf, eða gua jfy, er unnt að
birta þessi lögmál og skilja verkanir og gagnverkanir þeirra á hverri stundu. Þessi
hst að hagræða gröfunum eftir ákveðnum reglum, eða öllu heldur gagnverkun
táknanna og alheimslögmálanna sem þau standa fyrir, er stundum nefnd jian yi
fíjjJÍj sem þýða mætti sem „einfaldleiki". Upprunaleg merking fyrra táknsins jian
Pí eru bambusstrimlar og vera má að elsta spádómsaðferð Breytinganna hafi falist
í uppskiptingu og talningu sh'kra strimla fyrir myndun sexgrafa en ekki vallhum-
alsstilka eins og síðar tíðkaðist.
Hér fyrir framan hefur fyrst og fremst verið fjallað um elsta hluta Breytinga-
ritningarinnar. Þessi hluti á uppruna sinn að rekja aftur til upphafs tímabilsins
sem kennt er við Zhou-ættina og oft er jafnvel litið svo á að hann sé sjálf ritn-
ingin ásamt skýringum við hana sem kenndar eru við Vængina tíu. En eins og
fyrr greinir eru þeir ritaðir nokkru seinna, eða sennilega á tíma hinna stríðandi
ríkja. Vengirnir víkka út og skýra merkingu ritningarinnar með margvíslegu móti.
Þegar notast er við Breytingaritninguna til spádóma er fyrst og fremst stuðst við
textana við sexgröfin og línutextana til að ákvarða hvort spáin boðaði lán eða ólán,
en þessir textar eru oftar en ekki afskaplega torræðir og fornir. Ef einhver fengi til
dæmis spádóm og svarið væri í sexgrafi 28 j 1111 j da guo eða „yfirburðir hins
mikla“ þá hljómar textinn með eftirfarandi hætti: „Aíll • fijiílÉ • •
-*r • Yfirburðir hins mikla. Burðarásinn svignar. Það er hagur í að ferðast langt.
Gæfa.“ Eitt og sér er þetta harla torskilið og því er þörf á að útskýra tengshn á
milli forms línutáknsins, nafns þess og línutextans. Og það er það sem fyrsti hluti
Vængjanna sem nefnist „Ályktanir skýrðar" fyjffy Tuan zhuan gerir með eftirfar-
andi hætti:
xmmtn ■ mmttftitL ■ mijmmý • hmuíít • mmm ■ Jh
^■
Hið mikla hefur yfirburði. Burðarásinn svignar því endar hans eru veik-
ir. Hið sterka hefur yfirburði og er í miðju. Hið milda og hið glaðværa
[þrígröfin r= xun H og EE dui jí sem mynda sexgrafið] ráða ferðinni, því
er hagur í að ferðast langt og það verður til gæfu.