Hugur - 01.06.2008, Page 95

Hugur - 01.06.2008, Page 95
Skilið á milli 93 Það sem liggur þar að baki er að sannleikur sé afstæður þegar ákveðnar gerðir eiginleika eiga í hlut. Seinni leiðin hvílir hins vegar ekki á afstæðum sannleika og sumir hafa talið hana ófæra til að gera grein fyrir huglægum eiginleikum. Samkvæmt samhengishyggjunni er sannleikurinn um eiginleika á borð við fyndni nefnilega ósköp venjulegur og staðreyndirnar eru h'ka ósköp venjulegar. Það að skemmtiþátturinn sé fyndinn-fyrir-Gvend er satt á sama hátt og það er satt að skemmtiþátturinn hafi verið 28 mínútur að lengd. Hvernig á fyndni þá að geta verið frábrugðin lengd að einhverju leyti sem skiptir máli? Hvað gerir hana að huglægum eiginleika ef sannleikurinn um hana er sams konar og sannleikur um hlutlæga eiginleika og staðreyndirnar um hana eru hlutlægar á sama hátt og stað- reyndir um lengd? Það sem ég hyggst skoða betur hér er hvort afstæði sannleika eða staðreynda sé nauðsynleg forsenda þess að eiginleikar geti verið huglægir. Eg læt það liggja milli hluta hvort afstæðishyggja geti gengið upp. Það sem ég vil skoða er hvort hægt sé að komast af án hennar þegar huglægir eiginleikar eru annars vegar. Nánar tiltekið ætla ég að færa rök fyrir því að samhengishyggja um fyndni þurfi ekki að útiloka að fyndni sé huglægur eiginleiki í þeim skilningi að hlutir séu fyndnir vegna þess að einhver telur þá fyndna. Huglægur eiginleiki er eiginleiki sem hlutur hefhr í krafti þess að tiltekin hug- læg afstaða sé til staðar, þ.e. sú afstaða að hluturinn hafi eiginleikann. Þetta er það sem greinir huglæga eiginleika frá hlutlægum. Ég tel að mögulegt sé að varð- veita þessa sérstöðu jafnvel þótt gengið sé út frá samhengishyggju og þar með því að villulaus ágreiningur sé óhugsandi. Huglægnin hvílir ekki á því að villulaus ágreiningur sé mögulegur. Ef fyndni er aðstæðubundin getur skemmtiþátturinn eins og áður segir ekki bara einfaldlega verið fyndinn heldur getur hann aðeins verið fyndinn-fyrir- Gvend, fyndinn-fyrir-Siggu o.s.frv. Þarna blandast enginn afstæður sannleikur inn í. Það er ekki afstætt við sjónarhorn hvort þátturinn hefur eiginleikann að vera fyndinn-fyrir-Gvend. Þátturinn hefur þennan eiginleika og því getur eng- inn hafnað, nema þá Gvendur sjálfiir. Gudda getur bent á að þátturinn hafi ekki eiginleikann fyndinn-fyrir-Guddu en það hefur engin áhrif á það hvort hann er fyndinn-fyrir-Gvend. En lítum nú á hvað það er sem gerir það að verkum að þátturinn er fyndinn- fyrir-Gvend. Það hlýtur að vera hugarástand Gvendar. Skemmtiþátturinn hefur eiginleikann fyndinn-fyrir-Gvend í krafti þess að Gvendur hefur þá afstöðu til hans að hann sé fyndinn. Það er þannig hugarástand Gvendar sem gerir það að verkum að þátturinn hefur þann eiginleika að vera fyndinn-fyrir-Gvend. Er það ekki einmitt það sem þarf til að gera eiginleikann huglægan? Berum þetta aðeins saman við þá greinargerð sem afstæðishyggja um fyndni getur gefið. Samkvæmt henni er skemmtiþátturinn títtnefndi bæði fyndinn og ófyndinn í senn þar sem Gvendur telur hann fyndinn og Gudda telur hann ófyndinn og sjónarhorn þeirra beggja eru jafnrétthá. Hugmyndin er svo sú að þetta einkenni huglæga eiginleika. En hvaðan kemur huglægnin? Hún virðist ekki felast í afstæði sannleikans sem sh'ku og það ætla ég að sýna fram á með því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.