Hugur - 01.06.2008, Page 127

Hugur - 01.06.2008, Page 127
Formáli að Fyrirbærafræði skynjunarinnar 125 er til staðar, þau „koma hvort öðru á legg“'3 og koma jafnframt rökvísinni á legg með tilteknu frumkvæði sem á sér enga tryggingu í verunni, og réttlæting þess hvílir að öllu leyti á þeim raunverulega mætti sem hún lætur okkur í té hvað það varðar að gangast við sögu okkar. Heimur fyrirbærafræðinnar er ekki útskýring á fyrirframgefinni veru heldur grundvöllun verunnar. Heimspekin endurspeglar engin fyrirframsannindi, hún raungerir sannindi eins og listin. Menn kunna að spyrja hvernig slík raungerving sé möguleg og hvort hún hitti ekki fyrir, í hlutunum, skynsemi sem þegar er til staðar. Þessu má svara þannig til að sá eini Logos sem fyrirfram er til er heimurinn sjálfur, og sú heimspeki sem færir hann inn í sýnilega tilveru á ekki upptök í möguleikanum einum. Hún er virk eða raunveruleg eins og heimurinn sem hún er hluti af, og engin skýringartilgáta er ljósari en sú athöfn er við tökum þennan ófullbúna heim upp á okkar arma og freistum þess að skapa heild úr honum og skilja hann í hugsuninni. Rökvísin er enginn vandi, á bak við hana er engin óþekkt stærð sem við þurfum að ákvarða með afleiðslu eða sanna með aðleiðslu á grundvelli rökvísinnar: á hverri stundu verðum við vitni að því undri þegar upplifanir tengjast og enginn veit betur en við hvernig þetta á sér stað, því við erum sjálf þessi skurðpunktur tengslanna. Hvorki heimurinn né skynsemin er vandi; segja má að þau séu leyndardómsfull, ef okkur býður svo við að horfa, en leyndardómur þessi skilgreinir þau, og engin leið er að losna við hann með því að setja fram einhvers konar „lausn“, hann er hafinn yfir allar lausnir. Hin sanna heimspeki felst í því að læra upp á nýtt að sjá heiminn og í þeim skilningi getur frásögn vísað til heimsins á jafn „djúptækan" hátt og heimspekiritgerð. Við tökum hlutskipti okkar í okkar hendur, íhugunar- innar vegna verðum við ábyrg fyrir sögu okkar en einnig vegna þeirrar ákvörð- unar að leggja líf okkar í sölurnar og í báðum tilvikum er í tafli ofbeldisverk sem staðfestir sjálft sig um leið og það er drýgt. Sem opinberun heimsins hvílir fyrirbærafræðin á sjálfri sér eða leggur sjálf grunn að sjálfri sér.14 Hvers kyns þekking er reist á „jarðvegi“ frumhæfinga og að endingu á samskiptum okkar við heiminn sem koma rökvísinni á fót. Sem róttæk yfirvegun afsalar heimspekin sér þessari uppsprettu í orði kveðnu. Af því að hún er einnig hluti af sögunni notast hún hka við heiminn og þá skynsemi sem mótast hefur. Heimspekin verður því að beina til sjálfrar sín sömu spurningum og hún leggur fyrir allar afurðir þekkingarinnar. Fyrir vikið tekur hún stöðugt á sig nýjar myndir og verður, eins og Husserl orðar það, óendanleg samræða eða íhugun, og ef hún á að vera ætlun sinni trú mun hún aldrei vita hvert hún stefnir. Þau einkenni fyrirbærafræðinnar að vera ófullkomin og stöðugt á byrjunarstigi eru ekki til marks um að hún hafi siglt í strand heldur eru þau óhjákvæmileg vegna þess að fyrirbærafræðin einsetur sér að svipta hulunni af leyndardómi heimsins og skynseminnar.15 Hafi fyrirbærafræðin fremur verið hreyfing en fræðigrein eða kerfi, er það hvorki tilviljun né prettir. Hún útheimtir sömu þrautseigju og verk 13 Sama rit. 14 „Riickbeziehung der Phánomenologie auf sich selbst", segir í óútgefnu ritunum. 15 Þetta orðalag eigum við G. Gusdorf að þakka, en honum er haldið fbngnum í Þýskalandi þegar þetta er ritað. Ef til vill notaði hann þó hugtakið í annarri merkingu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.