Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 4
KLEPPSSPÍTALINN 75 ÁRA
AFMÆLISRIT
Ritnefnd:
Tómas Helgason, rítstjórí
Gísli Á. Þorsteinsson
Jakob Jónasson
Formáli
Snemma árs 1982 ákvaö Stjórnarnefnd Ríkisspítalanna að minnast þess, að á
árinu væru liðin 75 ár frá því að Kleppsspítalinn var tekinn í notkun. Af þessu
tilefni var m.a. ákveðið að gefa út afmælisrit þar sem fjallað væri um rannsóknir
starfsmanna geðdeildanna og efni tengd starfsemi þeirra.
Greinarnar, sem í ritinu birtast, hafa ekki verið prentaðar áður, en sumar
verið kynntar í fyrirlestrarformi á læknafundum hérlendis og erlendis, og
jafnvel verið dreift fjölrituðum. Ein greinin er fyrirlestur, sem fjallar um
rannsókn er undirritaður framkvæmdi sem aðstoðarlæknir borgarlæknisins í
Reykjavík fyrir rúmum 30 árum. Hann birtist hér óbreyttur þannig að niður-
stöður rannsóknarinnar séu aðgengilegar fyrir aðra til samanburðar. Allar
aörar greinar í ritinu hafa annað hvort verið skrifaðar sérstaklega til birtingar í
því eða umskrifaðar. Tvær greinar í ritinu eru ekki eftir starfsmenn geðdeild-
anna, en snerta báðar viðfang þeirra eða rannsóknarefni. Önnur er grein
prófessors Sigurjóns Björnssonar, en hin grein dósentanna Haraldar Ólafs-
sonar og Þorbjarnar Broddasonar, sem byggir á rannsókn sem þeir unnu að í
samvinnu við starfsmenn spítalans.
Rit sem þetta verður ekki til nema með samvinnu fjölmargra aðila, greina-
höfunda og annarra, og vil ég hér með tjá þeim öllum þakklæti. Auk greina-
höfunda vil ég sérstaklega nefna til Stjórnarnefnd Ríkisspítalanna, formann
hennar Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra, forstjóra Ríkisspítalanna Davíð Á.
Gunnarsson, ritstjórn Læknablaðsins og ritstjórnarfulltrúa þess Jóhannes
Tómasson. Þá hefur aðstoð ritara geðdeildanna og ýmissa annarra starfsmanna
þeirra, svo og starfsmanna ljósmyndastofu, tölvudeildar og tækniteiknara
Ríkisspítalanna verið mikils virði. Síöast en ekki síst vil ég þakka samverka-
mönnum mínum í ritnefndinni og Sólveigu Pálmadóttur, skrifstofustjóra geð-
deildanna, fyrir ómetanlega aðstoð, en án þeirra hefði verið mjög örðugt aö
koma þessu riti út.
Desember 1983
Tómas Helgason