Búskapur hins opinbera 1980-1989 - 01.03.1991, Síða 93

Búskapur hins opinbera 1980-1989 - 01.03.1991, Síða 93
banka. í framhaldinu verður aðeins vikið að þessum þáttum. Hvað varðar opinber (hálf-opinber) fyrirtæki þá hafa stjórnvöld mismikil áhrif á slík fyrirtæki og því mismunandi áhrif í gegnum þau. Á sum þeirra hafa þau engin áhrif en á önnur allmikil. Erfitt er að finna algilda reglu sem segir til um hver þeirra skuli telja með hinu opinbera og hver með einkaaðilum. Almenna reglan er sú að með einkaaðilum skuli telja þau fyrirtæki sem standa að öllu eða verulegu leyti undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vöru og þjónustu, og fjármagna fjárfestingar sínar með lánum á fjármagnsmarkaðnum með sambæri- legum kjörum og einkaaðilar. Ef fyrirtæki standa hins vegar ekki undir kostnaði sínum með sölu á vöru og þjónustu, og þiggja fram- leiðslustyrk eða fjármagnstilfærslur frá stjórn- völdum, er álitamál hvort telja eigi þau með einkaaðilum eða með hinu opinbera. Sama má segja um fyrirtæki sem fjármagna sig með lán- tökum, sem eru mun hagstæðari en gildandi markaðskjör vegna opinberra afskipta eða sem greiðast munu með skatttekjum stjórnvalda í framtíðinni. Það er augljóst að afkoma síðast- nefndu fyrirtækjanna er undir stjórnvöldum komin, og því undir áhrifavaldi þeirra. Hvar mörkin skulu dregin er erfitt að segja, sennilega þarf að meta sérhvert fyrirtæki fyrir sig. Einnig geta fyrirtæki verið mjög misháð hinu opinbera á mismunandi tímum. Meginreglan, sem hægt er að styðjast við í þessu samhengi, er að telja með hinu opinbera þau fyrirtæki sem grundvalla starfsemi sína á nútíðar og framtíðar skatttekj- um hins opinbera. Hvar varðar opinbera (hálf-opinbera) sjóði, þá hafa stjórnvöld mismikil áhrif á hagkerfið gegnum þá. Á suma sjóði hafa þau lítil áhrif, en á aðra allmikil. Erfitt er að finna algilda reglu um hvaða sjóði skuli telja með hinu opinbera og hvaða með einkaaðilum. Þó er til regla sem segir að með hinu opinbera skuli telj a þá sjóði sem eru fjárhagslega samvaxnir stjórnvaldinu, og þá sem hafa ekki umboð til að kaupa eða gefa út verðbréf nema með heimild stjórnvalda. Sam- kvæmt þessari reglu skulu þeir opinberu sjóðir sem eru sjálfstæðir í starfsemi sinni gagnvart opinberum aðilum, og fjármagna sig sjálfir með eigin tekjum (framlögum) eða lántökum á fjár- magnsmarkaðnum, teljast með einkaaðilum. Þessi regla er þó ekki algild né gallalaus. í fyrsta lagi getur stjórnvald í vissum tilfellum virkað sem fjármagnsmiðlari, þ.e. tekið lán á fjármagnsmarkaðnum og endurlánað. Ef slík endurlán eru til einkaaðila sem annars eiga greiðan aðgang að fjármagnsmarkaðnum er slík starfsemi áhrifalítil (nema hegðun einkaaðilans breytist þess vegna). í slíkum tilfellum má flokka þess konar stjórnvöld (sjóði) með einka- aðilum. Öðru máli gegnir um sams konar starf- semi ef endurlánað er til einkaaðila sem hafa ekki aðgang að fjármagnsmarkaðnum nema með þessum hætti. í slíkum tilfellum væri senni- lega rétt að flokka sjóðinn með hinu opinbera. Nú getur einkaaðilinn, sem hlýtur lán, ýmist átt greiðan eða engan aðgang að hinum frjálsa fjármagnsmarkaði. Áhrif stjórnvalda (sjóðsins) á hagkerfið ræðst þá af því hve greiður aðgangur hans er. Hvar draga á mörkin er að sjálfsögðu mjög erfitt að segja til um. í öðru lagi geta kjör og skilyrði lánanna verið mjög mismunandi. í vissum tilfellum geta lána- kjörin verið langt undir markaðskjörum sam- svarandi lána, sömuleiðis getur endurgreiðslum verið þannig háttað að lánin verða ekki greidd upp að fullu, þ.e. gengið er á framtíðar skatt- tekjur hins opinbera. í slíkum tilvikum er álita- mál hvort sjálfstæður sjóður, sem lánar út á slíkum kjörum, skuli flokkaður með einkaaðil- um eða opinberum aðilum. Hér gilda sömu reglur og um opinber fyrirtæki, þ.e. sjóður sem byggir á nútíðar og framtíðar skatttekjum hins opinbera skal talinn til hins opinbera. En að auki ef sjóður í eigu hins opinbera hefur mikil og önnur áhrif á hagkerfið en hinn frjálsi fjár- magnsmarkaður hefði, þá skal hann flokkaður með hinu opinbera að hluta eða öllu leyti. Útfrá ofangreindum reglum er hægt að skoða hvert fyrirtæki og hvern sjóð í eigu eða með eignaraðild hins opinbera og meta í hve ríkum mæli viðkomandi sjóður eða fyrirtæki er háð 91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212

x

Búskapur hins opinbera 1980-1989

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1980-1989
https://timarit.is/publication/1002

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.