Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 63

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 63
GUÐFRÆÐIN í PÓLITÍKINNI - PÓLITÍKIN í GUÐFRÆÐINNI Ktálsháttar réttarbótum fyrir svarta innan óbreytts kerfis. Síðan fireista þeir þess að setja frarn eigin gnðfræði sem miðast við aðstæður þeirra. Fyrst kosta þeir kapps um að greina samfélagslegar aðstæður og benda á að átök hvítra og svartra í Suður-Affíku séu ekki styrjöld milh tveggja mismunandi kynþátta heldur sé um að ræða átök kúgara og hinna undirokuðu.8 Því næst sýna höfundar f&/ror-skjalsins fram á að undirtónn Biblíunnar sýni að flest rit hennar eru skrifuð út frá sjónarhorni kúgaðra og endurspegli reynslu þeirra. Þá skoða þeir skilning kristinnar trúarhefðar á óréttlám rfkisvaldi sem meðal annars er byggður á Bibhunni og komast að raun um að samkvæmt honum er kúgarinn andstæðingur sameiginlegra gæða (lat. hostis honi communis) og réttlátrar skiptingar þeirra. Þrátt fyrir að höfund- amir séu mjög gagnrýnir á yfirvöld í landi sínu ítreka þeir kröfu fagnaðar- erindisins um að menn elski óvini sína, þar með talda handhafa óréttláts ríkisvalds. Þó benda þeir á að helsta kærleiksverk sem unnið verði bæði gagnvart kúgaranum og fórnarlömbum hans sé að svipta hann völdum og koma þar með í veg fyrir að hann auki sekt sína. Loks ítreka þeir að hinn kúgaði geti þrátt fyrir allt hfað í von þar sem hið illa er tímanlegt en ekki eilíft. Það muni því að lokum verða brotið á bak aftur af skapandi mættd hins góða. Höfundar Kairos-textans telja að kirkjan, samfélag trúaðra, eigi að taka fullan þátt í baráttu gegn hinni ranglátu samfélagsskipan. Það geri hún með því að boða fagnaðarerindið um að Guð standi með hinum kúgaða, en ekki síður með því að taka þátt í baráttu fyrir réttlátara samfélagi, stunda borgaralega óhlýðni og andóf ásamt því að veita siðferðilega leið- sögn.9 Hið mikilvæga er að í fG'/roj’-textanum er lögð áhersla á að greining guðfræðinnar hljótá að leiða til félagslegra aðgerða. Hér hefur skjalið verið tekið sem dæmi um póhtíska guðfræði við aðstæður sem flestum ber nú saman um að hafi einkennst af grímulausu ranglætá. Femíníska guðfræðin réðst aftur á móti til atlögu við vestrænt karlaveldi, sem hún gagnrýndi fyrir að hafa haldið konum frá völdum öldum saman og útilokað þær ífá menntun og virkri þátttöku í opinberu hfi.10 Þar er oft fremur um að ræða 8 Við nútímaaðstæður mætti spyrja hvort svipuðu máli gegni ekki um átök Israelsríkis og íbúa Gaza og Vesturbakkans þegar tekið er tillit tál hversu misjafnra gagna og gæða þessar tvær stríðandi þjóðir hafa yfir að ráða. 9 The Kairos Domment, sjá http://www.sahistory.org.za/pages/library-resources/ official%20docs/kairos-document.htm (skoðað 14.12.2009). 10 Mary Daly, Beyond God the Father: Toward a Philosophy of Women’s Liheration, Boston: Beacon Press, 1973; Rosemary Radford Ruether, Sexism and God-Talk: Torwarda Feminist Theology, Boston: Beacon Press, 1983.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.